Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snorri og teymið skrifa undir lengsta samning sögunnar

  • What: Snorri Steinn Guðjónsson signs long-term coaching contract
  • Impact: Stability for the Icelandic men's handball team
Read Full Article →

Snorri Steinn Guðjónsson og teymi hans munu stýra íslenska karlalandsliðinu í handbolta út Ólympíuleikana 2032. Einnig var framlengt við Arnór Atlason sem er aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta er lengsti samningur sem þjálfari íslenska landsliðsins hefur fengið. Snorri tók við liðinu fyrir EM 2024 og hefur stýrt liðinu á þremur stórmótum. Klári hann samning sinn mun hann sitja við stjórnvölinn í alls níu ár og verður hann sá þjálfari sem hefur stýrt liðinu lengst í sögunni. Guðmundur Guðmundsson stýrði liðinu í átta ár og þeir Bogdan Kowalczyk og Hilmar Björnsson í sjö ár. Stýrir Íslandi á heimavelli Snorri mun því stýra Íslandi á næstu átta stórmótum ef allt gengur upp. Þar með eru taldir Ólympíuleikarnir 2028 í Los Angeles og 2032 í Brisbane. Þá mun einn riðill á HM fara fram á Íslandi árið 2031 að því gefnu að Þjóðarhöllin í Laugardal verði risin. Þetta eru stórmótin sem Snorri mun stýra liðinu á - ef allt gengur upp. HM 2027 EM 2028 - ÓL í LA 2028 HM 2029 EM 2030 HM 2031 á heimavelli EM 2032 - ÓL 2032 Þessir hafa þjálfað íslenska landsliðið Sigurður Magnússon — 1950 Hallsteinn Hinriksson — 1958 Frímann Gunnlaugsson — 1959 Hallsteinn Hinriksson — 1961–1963 Karl Benediktsson — 1964–1967 Birgir Björnsson — 1968 Hilmar Björnsson — 1968–1972 Karl Benediktsson — 1973–1974 Birgir Björnsson — 1974–1975 Viðar Símonarson — 1975–1976 Janus Czerwinsky — 1976–1977 Birgir Björnsson — 1977–1978 Jóhann Ingi Gunnarsson — 1978–1980 Hilmar Björnsson — 1980–1983 Bogdan Kowalczyk — 1983–1990 Þorbergur Aðalsteinsson — 1990–1995 Þorbjörn Jensson — 1995–2001 Guðmundur Guðmundsson — 2001–2004 Viggó Sigurðsson — 2004–2006 Alfreð Gíslason — 2006–2008 Guðmundur Guðmundsson — 2008–2012 Aron Kristjánsson — 2012–2016 Geir Sveinsson — 2016–2018 Guðmundur Guðmundsson — 2018–2023 Gunnar Magnússon / Ágúst Þór Jóhannsson — 2023 Snorri Steinn Guðjónsson — 2023–

Share this article