Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lego og gervigreind í áróðri Írana sem nær til milljóna

Read Full Article →

Stríð eru háð víðar en á vígvellinum. Síðan herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu árásir á Íran hefur íranska fyrirtækið Explosive Media framleitt og birt myndbönd sem í fljótu bragði minna á Lego-kvikmynd. Svo er þó ekki því þetta eru áróðursmyndbönd sem fyrirtækið framleiðir fyrir stjórnvöld í Íran. Efnistökin eru af ýmsu tagi en oftast fjalla myndböndin um Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Hann er sýndur sem gamall og úr tengslum við raunveruleikann. Í nýjasta myndbandinu sem var birt í gær má sjá Trump skipuleggja lokun á umferð skipa um Hormússund á leið til og frá Íran. Þar er almenningur í Bandaríkjunum sýndur örvæntingarfullur yfir hækkandi vöruverði og Trump að svitna yfir hækkandi olíuverði. Undir hljómar tónlist með enskum texta. Milljónir hafa horft á myndbönd frá Íran þar sem gert er stólpagrín að stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Ísrael. Gervigreind gefur stjórnvöldum einræðisríkja meiri möguleika en áður til að ná til Vesturlandabúa, segir sérfræðingur. Það er ekkert nýtt að ríki beiti áróðri í stríði en með aðstoð tækninnar geta þau dreift honum mun víðar en áður. Emma Briant, sérfræðingur í stríðsáróðri og dósent við Notre Dame-háskólann í Indiana í Bandaríkjunum, segir við BBC að með tilkomu gervigreindar geti stjórnvöld í Íran náð betur til almennings á Vesturlöndum en nokkurn tíma áður. Við gerð myndbandanna sé notuð tækni sem hafi verið þróuð á Vesturlöndum með gögnum sem fyrirfinnist þar. Því sé þessi tækni kjörin til að gera áróðursefni sem menningarlega höfði til fólks á Vesturlöndum. Þetta sé tækni sem einræðisríki, sem vilji beina áróðri sínum til Vesturlanda, hafi ekki haft áður.

Share this article