Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FH einum sigri frá úrslitum

Read Full Article →

Birkir Benediktsson var markahæstur FH-inga í kvöld.RÚV / Mummi Lú FH komst í kvöld 2-1 yfir í undanúrslitaeinvígi sínum við Hauka á Íslandsmóti karla í handbolta. FH vann þriðja leik liðanna sem háður var í Kaplakrika 27-23. FH getur því með sigri í fjórða leik liðanna á Ásvöllum á föstudagskvöld tryggt sér sæti í úrslitum þar sem Valsmenn bíða. Haukar þurfa hins vegar að vinna þann leik til að knýja fram oddaleik sem yrði þá spilaður á mánudagskvöld. Birkir Benediktsson var markahæstur FH-inga í kvöld með átta mörk.

Share this article