Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórauka innviði til framleiðslu kjarnorkuvopna

  • What: North Korea increases nuclear activities
  • Impact: International nuclear monitoring concerns
Read Full Article →

Norður-Kóreustjórn hefur stóraukið starfsemi sína í kjarnorkuverum og kjarnorkuþróunarstöðvum með það fyrir augum að koma sér upp fleiri kjarnorkuvopnum. Þetta segir Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Grossi segir að aukinnar starfsemi hafi orðið vart í Yongbyon-kjarnorkuverinu og að Norður-Kóreumenn virðist vera að byggja aðra starfsstöð til að byggja upp sambærilega starfsemi á öðrum stað. Erfitt er þó að sannreyna neitt þar sem Norður-Kóreustjórn hætti að hleypa alþjóðlegum eftirlitsmönnum inn í landið til að kanna kjarnorkuuppbyggingu 2009. Grossi sagði erfitt að reikna aukið umfang án þess að komast á staðinn. Hins vegar gæfi stækkun kjarnorkuvera og annarra stofnana á sviði kjarnorku til kynna stóraukið umfang.

Share this article