Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins var í tveimur dómum Héraðsdóms Reykjavíkur, sem féllu í gær, dæmd skaðabótaskyld gagnvart Distu ehf. vegna ólögmætra ákvarðana um að taka vörur félagsins úr sölu í vínbúðum. ÁTVR var jafnframt dæmt til að greiða Distu samtals 3,7 milljónir króna í málskostnað. Annað málið laut að bjórtegundunum Faxe Witbier og Faxe IPA. Héraðsdómur viðurkenndi þar skaðabótaábyrgð ÁTVR vegna ákvarðana frá janúar og maí 2021 um að fella vörurnar úr vöruúrvali og hætta innkaupum á þeim. Í hinu málinu var fallist á skaðabótaábyrgð ríkisfyrirtækisins vegna ákvörðunar frá 12. nóvember 2024 um að fella freyðivínin Jaume Serra Rosado Brut og Jaume Serra Brut Nature Traditional Method úr kjarnaflokki og hætta innkaupum á þeim. Í báðum dómum er byggt á því að ÁTVR hafi beitt ólögmætum sjónarmiðum þegar ákveðið var hvaða vörur skyldu fá pláss í hillum vínbúðanna. Sjá einnig ÁTVR ýtti dýrari vörum að neytendum ólöglega Dómurinn tekur undir með Distu um að fyrirtækinu hafi mátt vera ljóst að samkvæmt lögum bæri að miða vöruúrval við eftirspurn, en ekki framlegð. Vörur Distu hafi þannig verið látnar víkja fyrir vörum sem ekki nutu sömu vinsælda. Málin eru framhald af langvinnum ágreiningi Dista og ÁTVR um hvaða sjónarmið megi ráða vöruúrvali í vínbúðum. Sá ágreiningur fékk veigamikla niðurstöðu í desember í fyrra, þegar Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ÁTVR hefði ekki mátt byggja ákvarðanir sínar á framlegðarsjónarmiðum. Nýju dómarnir ganga skrefi lengra, þar sem nú er ekki aðeins fjallað um ólögmæti ákvarðananna heldur einnig staðfest að ÁTVR beri bótaábyrgð vegna tjóns sem af þeim kann að hafa hlotist. Sjá einnig Viðhalda ólöglegu ástandi Í freyðivínsmálinu rakti héraðsdómur meðal annars að þrátt fyrir dóm Hæstaréttar í desember hefði ÁTVR látið hina umdeildu ákvörðun frá nóvember 2024 koma til framkvæmda eftir að kærufresti lauk í febrúar á þessu ári. Í Faxe-málinu var sömuleiðis komist að þeirri niðurstöðu að orsakatengsl væru milli hinna ólögmætu ákvarðana og þess tjóns sem Dista byggði kröfur sínar á. Dómarnir fela þó ekki í sér að skaðabæturnar sjálfar hafi þegar verið ákveðnar í krónum talið. Það sem héraðsdómur gerir er að viðurkenna skaðabótaábyrgð ÁTVR. Fjárhæð bóta liggur því ekki fyrir í þessum dómum. Hins vegar var ÁTVR dæmt til að greiða Distu 1,95 milljónir króna í málskostnað í freyðivínsmálinu og 1,75 milljónir króna í Faxe-málinu, eða samtals 3,7 milljónir króna. Sjá einnig „Þá er forstjórinn sjálfur að taka afstöðu til eigin gjörða“ Niðurstaðan er því sú að ÁTVR var ekki aðeins talið hafa brotið lög með ákvörðunum sínum, heldur einnig bera fjárhagslega ábyrgð á afleiðingum þeirra. Fyrir Distu eru dómarnir enn einn áfangasigurinn í deilu félagsins við ríkisfyrirtækið. Fyrir ÁTVR þýða þeir að deilan snýst ekki lengur aðeins um lögmæti vöruvalsins, heldur einnig um þann kostnað sem kann að leiða af ákvörðunum sem dómstólar hafa nú ítrekað talið ólögmætar.