Innlent | mbl | 15.4.2026 | 14:50 Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Segir stjórnin að leiðbeiningum hafi ekki verið fylgt við uppsögnina. mbl.is/Jón Pétur Setja bókamerki Stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Skortur sé á sérfræðilæknum víða á spítalanum og því teljist undarlegt að fækkað sé í þeirra hópi. Muni þetta leiða til aukins álags á þann hóp sem verður áfram við störf, aukinnar yfirvinnu og aukins kostnaðar. Þetta kemur fram í bréfi félagsins til forstjóra Landspítalans, framkvæmdastjóra lækninga og framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs. Frétt af mbl.is Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Bauðst ekki hærra starfshlutfall Það vakti mikla athygli í síðustu viku þegar Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum, greindi frá því að honum hefði verið sagt upp störfum á spítalanum, en staða hans var lögð niður. Hann var í rúmlega 30 prósent stöðu á spítalanum sem sérfræðingur í almennum lyflækningum, en Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans, sagði í samtali við mbl.is að verið væri að leggja niður nokkrar stöður til að skapa svigrúm til að ráða í 100 prósent stöður. Rafn sagði jafnframt að Ragnari hefði boðist hærra starfshlutfall, en Ragnar sagðist ekki hafa fengið slíkt boð. Frétt af mbl.is Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Frétt af mbl.is „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögnin ekki í samræmi við leiðbeiningar Í bréfi Félags sjúkrahúslækna til forstjóra og framkvæmdastjóra segir að ljóst sé að þörf sé fyrir starfið, enda eigi að auglýsa sama starf í hærra hlutfalli. „Læknum hefur verið sagt upp í sérgreinum þar sem fyrir liggur að mönnunarvandi er mikill og því erfitt að skilja hvernig hægt er að réttlæta þessar aðgerðir.“ Þá er í bréfinu gerð athugasemd við að framkvæmd uppsagnar sé ekki í samræmi við leiðbeiningar. Það sé óboðlegt að framkvæmdastjóri stærsta sviðs Landspítala fari fram með þessum hætti. Frétt af mbl.is Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf Bréfið sem sent var. Ekki fengið neinar upplýsingar „Þessi framkoma er ekki til þess fallin að laða lækna til starfa á Landspítalanum en mikið liggur við í mörgum greinum að fá til starfa öfluga sérfræðinga svo að hægt sá að halda úti faglegri þjónustu á stærsta háskólasjúkrahúsi landsins.“ Stjórn félagsins gagnrýnir jafnframt að félagsmenn sem starfa á spítalanum hafi ekki fengið neinar upplýsingar aðrar en fram hafi komið í fjölmiðlum, sem valdi óvissu og óöryggi. Í lok bréfsins er kallað eftir því að yfirstjórn Landspítalans upplýsi lækna og aðra starfsmenn um það hvaða áhrif meintar hagræðingaraðgerðir muni hafa áhrif á störf Landspítala. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Refsað fyrir að vera með dóttur stjórnarmanns Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Tölvuárás á hitaveitu í Svíþjóð tengd við Rússa Ráðinn þjálfari Fjölnis „Allt selt fyrir leiðina til Brussel“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Hissa en tjáir sig ekki um lágflugið Búa sig undir tvær myrkar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Enn lagði Dista ÁTVR Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Nýjast á mbl.is » Refsað fyrir að vera með dóttur stjórnarmanns Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Tölvuárás á hitaveitu í Svíþjóð tengd við Rússa Ráðinn þjálfari Fjölnis „Allt selt fyrir leiðina til Brussel“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Tilraunir til þvingunar dæmdar til að mistakast Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Enn lagði Dista ÁTVR Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“