Grænlenska þingið, Inatsisartut, staðfesti í vikunni skipan nýrrar landsstjórnar á Grænlandi eftir að Jafnaðarmannaflokkurinn Simut hætti stjórnarþátttöku. Jens-Frederik Nilesen verður áfram formaður landsstjórnarinnar. Þarf að takast á við ásælni Trumps í yfirráð Múte B. Egede, fyrrverandi formaður landsstjórnarinnar, tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og þarf að takast á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Egede sagði að það væru viðræður á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um hvernig megi leysa krísuna sem ríkti. Nauðsynlegt væri að hlusta hver á annan sem jafningja og að grænlenska stjórnin ætlaði ekki að hvika frá grundvallaratriðum í stefnu sinni. Vandamál í Tasiilaq Grænlenska stjórnin þarf að takast á við fleiri vandamál, mikið atvinnuleysi er í Tasiilaq á austurströnd Grænlands þar sem búa 1811 manns. Hagstofa Grænlands segir að 218 séu án vinnu og að atvinnuleysi hafi aukist mikið. Þversögn sé að jafnframt sé skortur á vinnuafli í bænum. Mikil félagsleg vandamál eru meðal íbúa í Tasiilaq. Möguleg herstöð í Narsarsuaq Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi. Bandaríski herinn byggði flugvöll þarna 1941 og kölluðu Bluie west one. Þúsundir herflugvéla fóru um völlinn á leið á vígstöðvarnar í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Vélarnar fóru um Grænland og Ísland. Þetta var óbyggt svæði þegar Ameríkanarnir byggðu flugvöllinn 1941. Bandaríkjamenn hurfu á brott frá Narsarsuq- 1958, þá hafði herstöðin í Thule á Norður-Grænlandi tekið við hlutverkinu. Aðalflugvöllur Suður-Grænlands Narsarsuaq-flugvöllur hefur verið aðalflugvöllurinn á Suður-Grænlandi, þangað til nú. Icelandair og fyrirrennarar þess flugu talsvert til Narsarsuaq. Ákveðið var fyrir nokkru að hætta rekstri flugvallarins í Narsarsuaq í tengslum við flugvallaruppbyggingu annars staðar á Grænlandi, þar á meðal er nýr flugvöllur í Qaqortoq sem er í 60 kílómetra fjarlægð. Qaqortoq hét áður Julianehåb, þar búa rúmlega 3000 manns og er bærinn sá stærsti á Suður-Grænlandi. Byggð norrænu Grænlendingana Þetta svæði var kjarni byggðar í Eystribyggð Grænlendinga hinna fornu, Brattahlíð hinum megin fjarðarins á móti Narsarsuaq. Hvalsey, þar sem er að finna rústir af kirkju, er rétt hjá Qaqortoq. Kirkjan og bærinn í Hvalseyjarfirði eru heillegar rústir frá þessum tímum og síðustu rituðu heimildir frá norrænu Grænlendingunum fjalla um þennan stað. Narsarsuaq er grænlenska og þýðir „stóra sléttan“. Í Narsarsuaq er lítið þorp þar sem búa á annað hundrað manns, fólk sem hefur starfað við flugvöllinn og í tengdri starfsemi. Nú er verið að loka öllu, ekki er lengur kennt í skólanum og hótelið tekur ekki lengur á móti gestum. Færeyska lögþingið staðfestir nýja stjórn Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, tekur við sem lögmaður eða forsætisráðherra af föðurbróður sínum Aksel V. Johannesen, sem er formaður Jafnaðarmanna. Nýi lögmaðurinn hefur sagt að með stjórn sinni ljúki blokkapólitík því hún nái yfir miðju stjórnmálanna. Stjórnarflokkarnir hafa góðan meirihluta, fengu samtals 24 sæti af 33 á færeyska Lögþinginu í kosningum 26. mars. Skítkast Bandaríkjaforseta Daglega berast fréttir af skítkasti Donalds Trumps í Leó páfa XIV. Forsetinn hefur sakað páfa um að vera róttækur vinstrimaður sem standi á sama þó að Íranir komi sér kjarnorkuvopnum og glæpamenn vaði uppi óáreittir. Trump hefur einnig sagt páfa vera veikgeðja og vankunnandi í utanríkismálum. Þá þakkar hann sér kjör Leós í fyrra vegna þess að hann er Bandaríkjamaður. Reiður vegna orða páfa Heift Bandaríkjaforseta virðist stafa af því að páfinn hefur lýst andstöðu við árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Þá setti ofan í við Donald Trump þegar Trump hótaði að leggja 6000 ára siðmenningu Írana í rúst. Raunar var páfinn meðal fjölmargra sem ofbauð orðfæri Trumps. Leó páfi hefur sagt að hann ætli ekki að standa í orðaskaki við Bandaríkjaforseta. Vanhugsuðar árásir á páfa Margir fréttaskýrendur hafa bent á að hvassar árásir Trumps á páfann séu afar vanhugsaðar, hann eigi á hættu að kristið fólk snúist gegn honum. Trump hafi gengið fram af mjög mörgum og vinir og stuðningsmenn hafa snúið baki við honum, til dæmis Giorgia Meloni , forsætisráðherra Ítalíu, sem sagði ummæli Trumps algerlega óviðunandi. Þá hefur mörgum ofboðið að Trump birtir af sér gervigreindarir í líki Jesú Krists. Tala sumir um guðlast í því sambandi. Gyðingar minnast helfararinnar Samfélag gyðinga á Íslandi minntist helfararinnar á þriðjudagskvöld. Umsjónarmanni Heimsgluggans var boðið og hlustaði á sex gyðinga sem búsettir eru á Íslandi fjalla um afa, ömmur, langafa, langömmur og aðra ættingja sem hefðu orðið fórnarlömb nasista sem myrtu sex milljónir gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni. Heyra mátti hvernig helförin litar allt líf ættingja fórnarlamba og einnig þeirra sem lifðu af. Fólk hefði verið með pakkaðar ferðatöskur tilbúnar af því að fólkið trúði ekki að það væri öruggt. Einnig um sektartilfinningu þeirra sem lifðu af. Sorgin, óttinn og áföllin skiluðu sér á milli kynslóða. Lögregluvakt var fyrir utan minningarsamkomuna sem er sorglegt tákn þess að gyðingahatur hefur farið vaxandi og jafnvel á Íslandi er talin þörf á lögregluvernd þegar gyðingar hittast. Hér má hlusta á Heimsglugga vikunnar Heimsgluggi vikunnar fjallaði um nýjar stjórnir í Færeyjum og á Grænlandi, möguleika á nýrri bandarískri herstöð í Narsarsuaq, skíkast Trumps í Leó páfa og minningarhátíð gyðinga vegna helfararinnar.