Evrópusambandið hyggst slaka verulega á reglum um fyrirtækjasamruna í því skyni að ryðja brautina fyrir svokölluð „evrópsk meistarafyrirtæki“ sem geti betur keppt við risafyrirtæki í Bandaríkjunum og Kína. Þetta kemur fram í drögum að nýjum leiðbeiningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem Financial Times hefur undir höndum. Samkvæmt umfjöllun blaðsins fela drögin í sér eina stærstu stefnubreytingu í samrunamálum í áratugi. Ef breytingarnar ná fram að ganga myndu þær endurspegla breyttan pólitískan tón í Evrópu, þar sem sífellt háværari kröfur hafa komið fram um að gera evrópskum fyrirtækjum kleift að stækka og styrkjast til að mæta harðnandi alþjóðlegri samkeppni. Í drögunum er meðal annars lögð áhersla á að vöxtur fyrirtækja og aukin stærð geti í ákveðnum tilvikum verið samkeppnishvetjandi fremur en hitt, meðal annars með því að efla nýsköpun, styrkja aðfangakeðjur og bæta aðgang að mikilvægum aðföngum. Þessi umræða í Evrópu kemur upp á sama tíma og Samkeppniseftirlitið hér á landi hefur nýverið tekið þveröfuga afstöðu í einu stærsta samrunamáli síðustu missera. Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í gærkvöldi var samrunaferli Arion banka og Kviku banka blásið af eftir fund fulltrúa bankanna með Samkeppniseftirlitinu, þar sem ljóst var að eftirlitið myndi ekki heimila þá hagræðingu sem aðilar töldu felast í samrunanum. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var það mat eftirlitsins að Kvika skipti það miklu máli fyrir samkeppni í einkabankaþjónustu, eignastýringu og útlánastarfsemi að ekki væri forsvaranlegt að samruninn gengi eftir á óbreyttum forsendum. Þar með féll eitt stærsta samrunaverkefni á íslenskum fjármálamarkaði um sjálft sig áður en það komst á formlegt umsóknarstig. Drög framkvæmdastjórnarinnar eru þó enn ekki endanleg og geta tekið breytingum. Engu að síður benda þau til þess að grundvallarumræða sé hafin innan Evrópu um hvort samkeppnisreglur eigi ekki aðeins að verja neytendur til skemmri tíma heldur einnig að styðja við uppbyggingu öflugri fyrirtækja sem geti staðið undir fjárfestingu, tækniþróun og alþjóðlegri samkeppni til lengri tíma.