Japönsk yfirvöld hafa heitið því að leggja tíu milljarða dala til að styðja við nágrannaríki sín í Asíu við að tryggja hráolíu en álfan glímir nú við miklar framboðsraskanir vegna stríðsins í Íran. Á vef BBC segir Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, hafi kynnt átakið í gær að loknum fjarfundi með leiðtogum Asíuríkja. Markmiðið er að efla olíuaðgengi Asíuríkja og þá sérstaklega í Suðaustur-Asíu en Japanir reiða sig mikið á vörur sem eru unnar úr olíu, eins og lækningabúnað, frá svæðinu. Rúmlega 90% af öllum olíu- og gasflutningum sem fara um Hormússundið fara til Asíu. Japanska utanríkisráðuneytið segir að upphæðin samsvari um það bil árlegum hráolíuinnflutningi ASEAN-ríkjanna. Fjármögnunin kemur meðal annars frá stofnunum á borð við Japan Bank for International Cooperation og Nippon Export and Investment Insurance.