Norska ríkisútvarpið NRK hyggst fækka um 300 til 400 stöðugildi á næstu fjórum árum. Vibeke Fürst Haugen, útvarpsstjóri NRK, staðfesti þetta við norska miðilinn Medier24 og sagði að niðurskurðurinn yrði einkum leystur með náttúrulegri starfsmannaveltu, ströngu aðhaldi í mönnun og tímabundnu ráðningabanni. Starfsmönnum var greint frá áformunum á netfundi á þriðjudag. Að sögn Fürst Haugen eru breytingarnar hluti af víðtækri uppstokkun sem á að búa NRK undir framtíðina, meðal annars með fjárfestingum í nýrri tækni, húsnæði, vinnuferlum og hæfniuppbyggingu starfsfólks. Áformin fela í sér að NRK verði komið niður í um 2.700 til 2.800 starfsmenn í kringum árið 2030, samkvæmt norskri fjölmiðlaumfjöllun. Í ársreikningi NRK fyrir 2024 kemur fram að hjá félaginu hafi verið 3.249 fastráðnir ársverk í lok þess árs. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórnendur NRK boða fækkun starfa. Sjá einnig Nærri þriðjungur allra fjölmiðlatekna rennur til RÚV Á fundi með menningarmálaráðuneyti Noregs í desember 2025 kom fram að fyrirhugað væri að draga úr mönnun um 150 ársverk á næstu tveimur árum, einnig fyrst og fremst með náttúrulegri starfsmannaveltu. Nýju áformin marka því framhald á þeirri hagræðingarlínu, en í stærri skala. Fréttirnar koma á sama tíma og NRK stendur í umtalsverðum fjárfestingum og umbreytingum á rekstri sínum. Þar vegur þungt innleiðing nýrrar tækni og undirbúningur að nýju húsnæði, samhliða því sem ríkisfjölmiðillinn reynir að laga starfsemi sína að breyttu fjölmiðlaumhverfi og auknum kröfum um hagkvæmni.