Innlent | mbl | 16.4.2026 | 16:50 Aðgerðirnar komi í veg fyrir skuldahækkun heimilanna Lilja Dögg Alfreðsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir Magnea Marín Halldórsdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Virðist hafa stigið yfir mikilvæga línu Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Áslaug Arna aftur á þing í sumar Misbeiting á valdi í pólitískum tilgangi » Fleiri tengdar fréttir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, segir efnahagsaðgerðir flokksins, sem kosta 13 milljarða, munu lækka verðbólgu um 1% og þannig koma í veg fyrir að skuldir heimilanna hækki um 20 milljarða. Lilja kynnti efnahagsaðgerðir flokksins í dag ásamt tillögu að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál. Lagt er til að aðgerðirnar gildi frá 1. maí til 1. október eða fram yfir endurskoðun komandi kjarasamninga. Frétt af mbl.is Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Tæplega 1% lækkun á verðbólgu „Meginmarkmiðið er að við sjáum lækkun á verðbólgu, til þess að stýrivextir geti lækkað, og að við séum að búa í haginn fyrir nýja þjóðarsátt,“ segir formaðurinn í samtali við mbl.is. „Til þess að svo sé hægt þurfa í fyrsta lagi allir að koma að borðinu, sem er aðgerð númer eitt, þar sem við hvetjum ríkisstjórnina til þess að fara í víðtækara samráð til þess að ná þjóðarsátt.“ Með aðgerð númer tvö sé lögð til samræmd og fyrirsjáanleg gjaldtaka hins opinbera en að sögn Lilju hefur það truflað baráttuna við verðbólgu að hið opinbera hafi ráðist í gjaldskrárhækkanir yfir verðbólgumarkmiðinu. „Það sendir ekki réttu skilaboðin til aðila í fyrirtækjarekstri, heimilanna eða aðila á markaði,“ segir hún. Aðgerð númer þrjú er verðbólgusía sem gengur út á meiri aga í opinberum fjármálum – að meta hvort aðgerðir séu líklegar til þess að auka verðbólgu eða minnka hana. „Við leggjum svo til þrjár aðgerðir sem eru til þess að verja velferðina,“ heldur Lilja áfram. Það séu tímabundin lækkun skatta á matvöru, tímabundin lækkun skatta á eldsneyti og afturköllun hækkunar skattstofna leigutekna. Flokkurinn sjái fyrir sér að lækkun á matarskatti úr 11% í 7% muni skila sér í tímabundinni lækkun verðbólgu um 0,5%. Lækkun á kolefnisgjaldinu úr 27% í 15% muni lækka verðbólgu um 0,4%. Að lokum megi minnka þrýsting á leigumarkaðinn með því að hækka skatta á leigutekjur og draga skattstofninn til baka. Allir þurfi að leggja eitthvað á sig til að ná þjóðarsátt Aðspurð segir Lilja lækkunina fyrir hvert og eitt heimili ekki fela í sér stórar tölur. Aftur á móti sé það liður í því að allir þurfi eitthvað að leggja á sig. „Ef þú ætlar að ná þessari sátt og ná verðbólguvæntingum niður, þá verðurðu fyrst að fara í þessar þrjár aðgerðir sem ég er að nefna. Stjórnvöld þurfa að vera miklu skýrari og þau hafa bara séð það í verðbólgutölum,“ segir hún. Þau hafi vanmetið umfang vandans og aðgerðir þeirra beri þess merki. Áttu von á að ríkisstjórnin taki vel í þessar tillögur og jafnvel tileinki sér þær? „Þetta er okkar framlag í því að bæta hagstjórnina og okkar framlag í þjóðarsátt. Við höfum sagt að við séum lausnamiðaður flokkur. Við erum umbótaflokkur og það er í anda okkar að vilja samvinnu og komast að einhverri niðurstöðu.“ Fyrirtækin njóti ekki aðgerða ríkisstjórnarinnar Spurð út í 13 milljarða kostnaðinn segist Lilja sjá fyrir sér að hann skili sér í annars stigs áhrifum. „Fari stjórnvöld í það að skuldbinda sig í þessa heildstæðu nálgun og koma í veg fyrir hækkanir sem þau hafa sjálf tekið þátt í, þá lækka verðbólguvæntingar á markaði, þá lækkar ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf og þá náum við frekari árangri gagnvart Seðlabankanum og verðbólguvæntingum.“ Þar að auki geri hún ráð fyrir því að aðgerðir flokksins muni hjálpa hagvexti með því að lækka kolefnisgjaldið tímabundið, þar sem fyrirtækin njóti ekki aðgerða ríkisstjórnarinnar sem voru kynntar fyrir viku. „Ég geri ráð fyrir að með því að lækka verðbólguvæntingar megi lækka ávöxtunarkröfu ríkissjóðs og þá vaxtagjöld ríkissjóðs,“ segir hún og bætir við: „Kostnaðurinn við aðgerðirnar er 13 milljarðar en með því að verðbólgan lækki um 1% gerum við ráð fyrir að við komum í veg fyrir að skuldir heimilanna hækki um 20 milljarða, og skuldir ríkissjóðs.“ Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu „Ef ríkisstjórnin ætlar að draga lappirnar“ Þú talaðir um í upphafi að jafnvægi ríkissjóðs skipti máli en einn milljarður væri ekki nóg, það þyrfti helst að vera meira. Væri ekki heillavænlegt að útfæra líka einhverja útgjaldalækkun samhliða þessu til þess að standa vörð um jafnvægi ríkissjóðs? „Jú, það er nauðsynlegt. Það þyrfti að vera meiri afgangur af því að það býr þá til meiri trúverðugleika á markaði. Við teljum að það að koma til móts við heimilin og atvinnulífið sé liður í því að búa til þjóðarsátt.“ Einhver útgjöld hafa nú þegar verið aukin af þessari ríkisstjórn. Sérð þú einhvers staðar augljós tækifæri til þess að draga úr útgjöldum? „Já, ég meina, það hefur verið gríðarleg útgjaldaaukning. Ávinningurinn og sá aukni hagvöxtur sem skilaði sér inn 2024-2025, hann var allur nýttur í ný útgjöld. Ég held að það þurfi að fara núna mjög markvisst yfir öll þessi nýju útgjöld, nota bara verðbólgusíuna og athuga, eru þau til þess fallin að búa til stöðugleika eða ekki? Það verður að gera það vegna þess að eins og staðan er núna þá er bara óvissa. Fyrirtækin og heimilin eru búin að missa tiltrú á lækkun verðbólgu.“ Þú telur þá að aðgerðirnar sem ríkisstjórnin boðaði nú á dögunum dugi ekki til? „Þær duga ekki til ef ríkisstjórnin ætlar að draga lappirnar í því að smíða nýja þjóðarsátt. Þá versnar staðan.“ Tengdar fréttir Alþingi Virðist hafa stigið yfir mikilvæga línu Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Áslaug Arna aftur á þing í sumar Misbeiting á valdi í pólitískum tilgangi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðgerðirnar komi í veg fyrir skuldahækkun heimilanna Tekist á um útgáfurétt verðlaunaviðburðar Vesturbæingar fljótir að bregðast við Konan vill þeim illt Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Sigmundur Davíð lét ekki segjast Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Aðgerðirnar komi í veg fyrir skuldahækkun heimilanna Tekist á um útgáfurétt verðlaunaviðburðar Vesturbæingar fljótir að bregðast við Konan vill þeim illt Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Hækkar byggingarkostnað Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Bændur með harða gagnrýni Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Sigmundur Davíð lét ekki segjast Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn