Innlent | mbl | 16.4.2026 | 22:10 Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Leigjendasamtakanna, segir áformin byrjunarskref í því að leigumarkaðurinn á Íslandi verði líkari því sem tíðkast í Evrópu almennt. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend/mbl.is/Sigurður Bogi Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika » Fleiri tengdar fréttir Samtök leigjenda á Íslandi fagna boðuðum aðgerðum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins sem miða að því að auka húsnæðisöryggi og bæta réttarstöðu á leigumarkaði. Aðgerðirnar kynnti Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra í fyrradag, en í byrjun marsmánaðar átti hann fund með fulltrúum Leigjendasamtakanna sem lögðu þar fram tillögur að mörgum þeirra aðgerða sem kynntar voru. „Við sjáum þetta sem byrjunarskrefið í því að leigumarkaðurinn hérna á Íslandi verði meira fyrir fólk og líkari því sem tíðkast í Evrópu almennt. Staðreyndin er sú að af þeim löndum sem við berum okkur saman við er Ísland eina landið þar sem leiguverð hefur verið algerlega frjálst,“ segir Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður samtakanna, í samtali við mbl.is. „Alls staðar annars staðar hefur einhvers konar eðlilegum hömlum verið komið á leiguverð og hækkun þess, þannig að við erum að reyna að færa íslenska markaðinn til þess vegar að vera sanngjarnari og líkari því sem tíðkast annars staðar.“ Frétt af mbl.is Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Muni draga úr verðbólgu Yngvi segir að sérstaklega beri að fagna þeim hluta aðgerðanna sem snúi að afnámi vísitölutengingu við leiguverð, vegna þess að það muni draga talsvert úr verðbólgu og gagnast þannig samfélaginu í heild sinni. Ákvæðið snýr að því að mánaðarleg vísitölutenging húsaleigu verði gerð óheimil, og þar með verði leigusölum aðeins heimilt að hækka leigufjárhæð einu sinni á 12 mánaða fresti og er að sögn Yngva tekið beint upp úr tillögu Leigjendasamtakanna. „Það er alveg ástæða fyrir því að þessi tillaga var tekin beint upp úr okkar tillögum og sett í frumvarp, vegna þess að við sýndum fram á að eitt prósent af ársverðbólgunni, ef miðað er við að hún sitji í fimm prósentum, er tilkomið vegna þessara mánaðarlegu hækkana,“ segir hann. „Þannig að þessi breyting mun koma til með að hjálpa okkur öllum.“ Hjálpa leigjendum en ekki leigusölum Hugmyndin um endurskoðun bótakerfisins með það fyrir augum að hjálpa fólki en ekki leigusölum, eins og staðan sé í dag, sé einnig hrósverð og mikilvægasta skrefið fyirr leigjendurna sjálfa. „Það er mikilvægasta skrefið fyrir leigjendurna sjálfa, því að húsnæðisbætur í dag nema milljarði á mánuði fyrir skattgreiðendur en fara bara beint til leigusala og hafa eiginlega aldrei áhrif til lækkunar leigubyrði nema í óhagnaðardrifnu húsnæði – Þar er leigan ákveðin fyrirfram og húsnæðisbæturnar eru ekki bara nýttar til að hækka leigufjárhæðina.“ Eftir síðustu kjarasamninga hafi leiga hækkað gríðarlega, sér í lagi hjá leigufélögunum, og leigjendur þar af leiðandi ekki notið góðs af hækkun húsaleigubóta – nema í óhagnaðardrifnu leiguhúsnæði á borð við félagsbústaði og stúdentagörðum. „Þannig að við viljum samræma þetta og breyta þessu, og það er skref sem við erum að fara að vinna með ráðuneytinu. Það er gott samstarf okkar á milli og mikill skilningur, og eftir að hafa hitt ráðuneytisstarfsfólk og ráðherra nokkrum sinnum munum við nú vinna náið með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í því að greina þetta betur.“ Yngvi segir endurskoðun bótakerfisins mikilvægasta skref áætlunarinnar fyrir leigjendurna sjálfa. mbl.is/Sigurður Bogi Leigjendum fjölgað þrátt fyrir séreignarstefnu Hann segir að þrátt fyrir að ákveðin séreignarstefna hafi verið við lýði á Íslandi í rúm 30 ár hafi leigjendum fjölgað gríðarlega – í dag séu leigjendur á næstum einu af hverjum þremur heimilum á landinu, en fyrir þrjátíu árum hafi hlutfallið verið einn af hverjum tíu. „Það fer ekki alveg saman, stefnan og hvernig hún skilar sér, en við viljum miða að því að gera leigumarkaðinn réttlátari fyrst hann er greinilega kominn til að vera,“ segir hann og bætir því við að sinna þurfi markaðnum vel, enda séu hundruð þúsund manna að leigja húsnæði á Íslandi. Leigjendur þakki því fyrir þessar aðgerðir og séu mun bjartsýnni á framtíðina en áður. „ Það er mjög gott að hafa stjórnvöld sem eru að hlusta núna á þennan stóra hóp sem leigjendur eru,“ segir Yngvi og bætir því við að leigjendur séu einn stærsti hagsmunahópur á landinu sem alfarið hafi verið gengið framhjá svo árum skipti. „Núna er breyting þar á sem er mjög sýnileg og við erum þakklát fyrir það. Það skiptir máli að hægt sé að tala við ráðamenn.“ Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Níu leikmenn á förum frá Liverpool? Mávurinn skaðvaldur í laxaseiðum Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð Victoria Beckham tjáir sig um fjölskyldudeilurnar Erfitt fyrir alla hérna Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Veruleg skerðing á bílastæðum Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Níu leikmenn á förum frá Liverpool? Mávurinn skaðvaldur í laxaseiðum Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð Victoria Beckham tjáir sig um fjölskyldudeilurnar Erfitt fyrir alla hérna Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkar byggingarkostnað Óábyrgt að fara að lofa einhverju Bændur með harða gagnrýni Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn