Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kennarasambandið braut jafnréttislög

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.4.2026 | 22:45 Kennarasambandið braut jafnréttislög Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kennarasamband Íslands (KÍ) hafi brotið jafnréttislög með því að neita að greiða konu sömu laun og karlkyns samstarfsmanni hennar sem var í sambærilegu starfi. Úrskurðurinn hefur verið birtur á vef Stjórnarráðsins en málið var tekið fyrir 25. mars. Laun karlsins hækkuðu um 200.000 krónur Segir þar að í málinu liggi fyrir að konan og karlkyns samstarfsmaður hennar hafi gegnt sambærilegum störfum hjá KÍ. Konan hafi hafið störf í október 2021, um sex mánuðum eftir að karlinn hóf störf, og voru þá föst laun þeirra og ráðningarkjör þau sömu. Laun karlsins hafi hins vegar tekið breytingum til hækkunar þegar gerður var nýr ráðningarsamningur við hann rúmum sex mánuðum eftir að konan hóf störf sem leiddi til þess að laun hans urðu hærri en laun hennar sem tóku engum breytingum. Var sá ráðningarsamningur undirritaður af formanni eins aðildarfélags KÍ. Þá liggja fyrir upplýsingar úr launakerfi KÍ sem sýna fram á að grunnlaun karlsins hafi verið um 200.000 kr. hærri en konunnar á tímabilinu mars til nóvember 2022 auk þess sem hann virðist hafa notið umframgreiðslna fyrir störf sín. KÍ sagðist ekki bundið af ákvörðun formanns aðildarfélags síns Segir í úrskurðinum að konan hafi komið að máli við formann KÍ, Magnús Þór Jónsson, haustið 2023 þar sem hún vildi gera kröfu um leiðréttingu launa sinna vegna þess samnings sem gerður hafði verið við karlkyns samstarfsmann hennar. Í kjölfarið hafi verið send beiðni til formanns og skrifstofustjóra sambandsins þar sem óskað var eftir upplýsingum og gögnum um launakjör karlsins. Sömuleiðis óskaði konan eftir því að málið yrði tekið til skoðunar samanber lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Í úrskurðinum kemur fram að aðildar málsins hafi fundað í mars 2024 og í kjölfarið hafi borist tölvupóstur frá Magnúsi þar sem fram kom að hann og skrifstofustjóri KÍ hefðu fengið álit lögmanns KÍ um málið og vildu ræða við konuna á fundi. Aðilarnir funduðu því aftur 21. mars 2024 sama ár og var þar konunni tilkynnt að nýtt álit lögmanns lægi fyrir þess efnis að KÍ væri ekki bundið af þeirri ákvörðun formanns aðildarfélags síns að hækka laun karlsins. Fór því svo að konan lagði fram kæru í apríl þar sem fram kom að litið væri svo á að KÍ hefði brotið gegn jafnréttislögum og gerð krafa um að sambandið myndi leiðrétta laun konunnar á þann veg að hún fengi greidd sömu laun og karlinn. Ábyrgðin á KÍ Að því er kemur fram í úrskurðinum féllst kærunefndin ekki á rök KÍ heldur taldi frekar að þar sem KÍ sjái um launagreiðslur og framkvæmd þeirra beri sambandið ábyrgð. Þá kemur fram í úrskurðinum að konan hafi sýnt fram á líkur á kynbundinni mismunun og að KÍ hafi ekki getað útskýrt launamuninn með öðrum málefnalegum ástæðum. Var því úrskurðað að KÍ hefði brotið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna með því að synja konunni um leiðréttingu launa. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Auddi og Rakel opna dyrnar Kennarasambandið braut jafnréttislög „Þetta var bara mjög tæknilegt“ Alltaf að verða betri í þýskunni Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Lágar álögur og vaxandi samfélag Óábyrgt að fara að lofa einhverju Veruleg skerðing á bílastæðum Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Auddi og Rakel opna dyrnar Kennarasambandið braut jafnréttislög „Þetta var bara mjög tæknilegt“ Alltaf að verða betri í þýskunni Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkar byggingarkostnað Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Lokaðir inni um óákveðinn tíma Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn

Share this article