Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lögðu grunn á vel heppnaðri kynningu á Indlandi

Read Full Article →

Íslensk sjávarafurðavika var haldin af sendiráði Íslands í Nýju Delí á Indlandi í byrjun mars. Var það kynning sem haldin var í tilefni af fríverslunarsamningi EFTA-landanna og Indlands sem tók gildi 1. október í fyrra. Auk sjávarafurða var Ísland kynnt sem áfangastaður ferðamanna. Í greinargerð sendiráðs Íslands kemur fram að eftirspurn Indverja eftir hágæða sjávarafurðum hafi farið stöðugt vaxandi og að hún sé knúin áfram af hraðri borgamyndun, hærri ráðstöfunartekjum, þróun í matarsmekk og stækkun smásölu- og þjónustugeirans. Veisla í farangrinum Segir í skýrslunni að árangursrík framkvæmd sjávarafurðasýningarinnar hafi hvílt á margra mánaða undirbúningi og samhæfingu aðila á Íslandi og á Indlandi. Viðburðurinn fór fram á Roseate-­hótelinu sem ekki aðeins lagði til eldhús sitt og starfsfólk heldur einnig þjónustu markaðsdeildar sinnar. Íslensk fyrirtæki sem lögðu lóð á vogarskálarnar voru Iceland Seafood International, Arnarlax, Brim Seafood og Icelandic Seafood. Íslenskir matreiðslumenn fóru utan með 300 kíló af ferskum fiski í farangrinum. Stöðugt hrósað Að því er segir í skýrslunni vakti viðburðurinn mikla hrifningu indverskra matreiðslumanna, hótelsérfræðinga og innflytjenda. „Gæðum, rekjanleika og fjölbreytni íslensks sjávarfangs var stöðugt hrósað,“ segir í skýrslunni. Margir hafi sýnt áhuga á frekari könnun og kynningu. Fríverslunarsamningurinn hafi opnað glugga að raunverulegum tækifærum. Nú sé verkefnið að byggja áfram á þessum grunni og skapa viðskiptatengsl sem opnað hafi verið fyrir. Einbeiti sér að hátekjumörkuðum Í sameiginlegri skýrslu sendiráða Noregs og Íslands á Indlandi um mögulega sölu sjávarafurða frá löndunum tveimur segir meðal annars að þarlendur markaður sé afar viðkvæmur er komi að verðlagningu. Unnum afurðum frá þessum löndum verði að beina að hátekjumörkuðum, svo sem matgæðingakeðjum og lúxusverslunum og að fimm stjörnu hótelum. Sjóleiðin afar löng Bent er á að sjávarurðir frá Noregi og Íslandi skorti sýnileika á Indlandi og að þarlendir séu vanari slíkum vörum frá löndum Suðaustur-Asíu. Þörf sé á viðvarandi fjárfestingu í markaðssetningu og samvinnu við matreiðslumenn. Einnig segir í sameiginlegu skýrslunni að það taki fjórar til sex vikur að sigla þessum vörum til Indlands og að þá bætist við tími í tollinum. Þetta stytti hillutímann í verslunum, sem verði hikandi við að eiga birgðir af þessum afurðum.

Share this article