Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, telur tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru á dögunum ekki duga til að lækka vexti og verðbólgu. „Við tókum það inn í reikninginn, þessa tímabundnu lækkun á bensíni, en það dugir ekki til. Við verðum áfram með mikla verðbólgu,“ segir Una. Hún var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun þar sem hún ræddi hagspá Landsbankans fyrir árin 2026-2028 sem var birt í morgun. Spá 8,25 prósenta stýrivöxtum. Greiningardeild Landsbankans telur sennilegt að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á árinu. Hún spáir 1,7 prósenta hagvexti í ár. Þar er því spáð að stýrivextir verði ekki lækkaðir fyrr en á næsta ári en bankinn gerir ráð fyrir meðalverðbólgu upp á 4,8 prósent í ár. Gert er ráð fyrir að húsnæðisverð hækki hægar en annað verðlag og raunvirði þess lækki því næstu tvö árin. Spáin ekki hagstæð fyrir kjarasamninga Una segir að það muni standa mjög tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga bresti í ágúst. Þá spáir bankinn 4,8 prósenta verðbólgu en 4,6 prósentum mánuðina sitt hvorum megin við. Í forsenduákvæðinu segir að mælist verðbólga yfir 4,7 prósentum skapist heimild til að segja upp samningum ef ekki næst að semja um einhvers konar viðbragð. „Ágúst verður svolítið erfiður mánuður því þá er líka sólmyrkvinn,“ segir Una. Vegna hans er búist við að ferðamenn streymi til landsins sem gæti valdið verðþrýstingi. Tímasetningin sé því óheppileg upp á kjarasamningana að gera. „Það er bara mikill verðbólguþrýstingur þessa stundina. Mér finnst líklegt að verðbólga verði yfir þessu marki – og þá eru kjarasamningar í uppnámi í haust.“