Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íranar opna Hormússund

  • What: Iran announces opening of Hormuz Strait
  • Impact: International shipping routes affected
Read Full Article →

Frá Hormuz-sundi.AP / Altaf Qadri Öll umferð um Hormússund er nú heimil á meðan vopnahlé í Miðausturlöndum stendur yfir. Þetta tilkynnti Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í yfirlýsingu á X og sagði þetta í samræmi við vopnahlésskilmála í Líbanon. Arraghchi sagði þar að nú gætu öll flutningaskip farið frjáls um sundið. Ekki var tekið fram hvort átt væri við nýtilkomið 10 daga vopnahlé í Líbanon eða tveggja vikna vopnahlé í Íran sem tók gildi 8. apríl. Olíuverð lækkaði um 10% á mörkuðum eftir þessa yfirlýsingu. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði hins vegar að lokun þeirra á skipaumferð frá Íran um sundið væri í fullu gildi þangað til friðarsamningar næðust.

Share this article