Íranski herinn sagði í morgun að Hormússund hefði „snúið aftur í fyrra horf“ og væri „undir ströngu eftirliti.“ Ekki er hægt að skilja yfirlýsinguna á annan veg en þann að sundið sé lokað. Talsmaður hersins í Íran sagði að sundið væri áfram undir „strangri stjórn og eftirliti hersins“, samkvæmt írönskum ríkismiðlum, og að svo yrði þar til Bandaríkin afléttu hafnbanni sínu á írönskum höfnum. Bandaríkin hafa sagt að þau muni halda hafnbanninu áfram á meðan viðræður við Íran standa yfir. Yfirlýsingin kemur innan við sólarhring eftir að utanríkisráðherra Írans sagði að siglingaleiðin væri aftur opin.