Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Húðvörur velta milljörðum

Read Full Article →

Viðskipti | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 17:12 Húðvörur velta milljörðum Útlit Hólmfríður Einarsdóttir segir að Blue Lagoon Skin Science eigi viðskiptavini í 45 löndum. Morgunblaðið/Eggert Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Sala húðvörufyrirtækisins Blue Lagoon Skin Science, dótturfélags Bláa lónsins, hefur aukist mikið á síðustu árum. Á milli 2024 og 2025 jókst heildarsalan á öllum mörkuðum til að mynda um 21%, úr 2,2 milljörðum króna upp í 2,7 milljarða. Sjötíu manns vinna hjá fyrirtækinu sem var skilið frá rekstri Bláa lónsins árið 2024. „Á Íslandi var heildarvöxtur 20% þar sem sala í verslunum jókst um 19% milli ára. Bein sala til neytenda í gegnum netsölu jókst um 145% og heildsala jókst um 64% milli ára,“ segir Hólmfríður Einarsdóttir framkvæmdastjóri í samtali við Morgunblaðið. Þá segir hún að EBTITDA-framlegð hafi verið 90 m.kr. á síðasta ári. Jókst í Bandaríkjunum Í Bandaríkjunum jókst salan um 26% milli ára og 78% í heildsölu en vörur Blue Lagoon Skin Science eru meðal annars seldar í verslunum Nordstrom og Ulta Beauty, einum stærsta söluaðila snyrtivara í Bandaríkjunum eins og Hólmfríður útskýrir. Sala í stórversluninni Saks Fifth Avenue hefst á næstu dögum og sala hófst í Bretlandi í mars sl. „2025 var svakalega gott ár – það besta frá upphafi. Árið í ár fer mjög vel af stað einnig,“ segir Hólmfríður sem tók við stjórnartaumunum árið 2024. Um einstaka markhópa segir Hólmfríður að mesti vöxturinn á alþjóðavísu sé í sölu til karlmanna. „Við höfum verið með vel sótta herraviðburði. Karlmenn nýta sér í auknum mæli bæði krem og augnaserum sem er rúllað í kringum augun áður en krem er borið á. Þeir koma sér upp húðrútínu rétt eins og kvenfólkið. Fólk hugsar sífellt betur um húðina.“ Eins og Hólmfríður lýsir eru rúm þrjátíu ár síðan Bláa lónið setti fyrstu vöru sína á markað, Silica Mud Mask. „Það var fyrsta íslenska húðvaran byggð á vísindarannsóknum. Enn í dag er formúlan sú sama. Silica Mud Mask djúphreinsar húðina og styrkir varnarlag hennar. Við höfum fengið fjölmörg verðlaun í gegnum tíðina fyrir þessa húðvöru.“ Silica Mud Mask frá Blue Lagoon Skin Science. Hólmfríður segir að ef húðvandamál gera vart við sig þýði það að varnarlagið sé að gefa sig. „Þá viltu byggja upp varnir húðarinnar.“ Annar vaxandi viðskiptavinahópur eru unglingar. „Vörurnar okkar eru jafnvel gefnar sem fermingargjafir. Þessi aldurshópur þarf gjarnan að hreinsa húðina til að koma í veg fyrir unglingabólur.“ Ætlaðar 25 ára og eldri Blue Lagoon Skin Science þróar einnig og selur vörur sérstaklega ætlaðar fólki 25 ára og eldra, BL+ Complex. „Þar að baki liggur áratugalöng rannsóknarvinna. Vörur með BL+ Complex komu fyrst á markað fyrir fimm árum. Þarna er á ferðinni einstök samsetning sem sameinar krafta kísilsins úr Bláa lóninu og örþörunga, sem tryggir að innihaldsefnin fara djúpt niður í húðlögin. Efnin styrkja húðina innan frá, örva nýmyndun kollagens og draga úr niðurbroti þess. BL+ Complex styrkir líka varnarlag húðarinnar og er lykilþáttur í sérstöðu vörumerkisins á markaði. Í vörunum eru einkaleyfisvarin lífrík innihaldsefni.“ Spurð um samkeppnina segir Hólmfríður hana mikla. Mörg gylliboð séu í gangi þar sem sléttari húð er lofað og unglegra útliti. Oft er þar um skyndilausnir að ræða sem margir eru ginnkeyptir fyrir. „Við staðsetjum okkur annars staðar á markaðnum og eigum í samkeppni við aðrar hágæðavörur eins og Dr. Barbara Sturm, Augustinus Bader og La Mer.“ Hólmfríður segir að engin ilmefni séu í vörum Blue Lagoon Skin Science. „Við viljum að viðskiptavinir velji sinn ilm í stað þess að fá hann í gegnum húðvörurnar.“ Á dögunum skipti fyrirtækið um nafn. „Eftir að ég tók við fyrirtækinu fórum við í stefnumótun. Við ræddum við núverandi og hugsanlega viðskiptavini um allan heim. Rýnihópar notuðu vörurnar og við tókum djúpviðtöl. Þetta var heilmikil fjárfesting enda gríðarlega mikilvægt að kynnast viðskiptavinum. Við komumst að því að vísindin eru innsti kjarninn okkar og þessi einstöku innihaldsefni sem þú finnur hvergi annars staðar í heiminum. Því breyttum við nafninu úr Blue Lagoon Skincare í Blue Lagon Skin Science. Breytingin hefur hlotið mjög góðar viðtökur.“ Hólmfríður lýsir vel heppnuðum viðburðum beggja vegna Atlantsála þar sem blaðamenn, fagaðilar og læknar mæta og einnig ótal verðlaunum sem fyrirtækið hefur fengið í gegnum tíðina. „Tískutímaritið Allure veitti okkur t.d. virt verðlaun nýlega í kjölfar þess að ritstjórinn, Jenny Bailly, fór í 22 tíma flugferð frá Singapúr til Bandaríkjanna. Hún bar bláa rakamaskann okkar á sig áður en hún fór í loftið og sagði að húðin hefði litið betur út þegar hún lenti en áður en hún fór af stað,“ segir Hólmfríður og brosir. „Umfjöllunin og verðlaunin settu allt á hliðina hjá okkur og salan tók kipp.“ Vann hjá Feel Iceland Hólmfríður vann áður hjá kollagenframleiðandanum Feel Iceland. „Þetta eru tengdir geirar,“ segir Hólmfríður sem stýrði lengi vel markaðsmálum hjá Kaupþingi og Íslandsbanka. „Ég fékk mjög gott uppeldi í bönkunum. Reynsla af markaðsmálum er dýrmæt og nýtist alls staðar. Eftir að ég hætti í fjármálageiranum flutti ég til útlanda og sótti mér viðbótarmenntun. Ég fór í markvissa naflaskoðun til að skoða hvar ég vildi bera niður næst og heilsugeirinn varð fyrir valinu.“ Hún segir spurð um samanburð á banka- og heilsugeiranum að allt snúist þetta á endanum um viðskipti. „Munurinn er kannski að í fjármálageiranum er varan frekar óáþreifanleg. En almennt er ekkert sem gefur mér meira en að fá endurgjöf frá viðskiptavinum sem nota vörurnar og kaupa þær aftur og aftur.“ Hólmfríður segir mikilvægt í heilsugeiranum að lofa aldrei neinu sem ekki er hægt að standa við. „Maður þarf að vera sannur og heiðarlegur. Til dæmis prófum við engar vörur sjálf heldur fáum þriðja aðila í það. Þannig ávinnum við okkur traust.“ Hólmfríður segir að tækifærin séu fjölmörg og framtíðin björt. „Það eru margir sem hafa samband við okkur og hafa áhuga á að selja húðvörurnar okkar. Við vöndum okkur í valinu og byggjum allt á greiningum og tölfræði. Við eigum viðskiptavini í 45 löndum.“ Fyrirtækið rekur vöruhús í Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi og er með starfsfólk í París í Frakklandi, Barcelona á Spáni og í Mílanó á Ítalíu. „Það er nauðsynlegt að hafa starfsfólk í löndunum til að þekkja markaðinn og geta fylgst með. Við erum líka farin af stað í Kína. Það er risastór markaður en við þurfum að stíga varlega til jarðar. Kínverjar hafa verslað mikið af okkur í gegnum netið og eru mjög tryggir viðskiptavinir.“ 97% nýir viðskiptavinir Blue Lagoon Skin Science var valið úr fjölda annarra húðvörumerkja fyrir ítarlega umfjöllun laugardaginn 21. mars sl. í Today Show, morgunþætti bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC. „Þetta vakti mikla athygli. Salan margfaldaðist í kjölfarið og við seldum Silica Mud Mask á fjögurra sekúnda fresti allan þann dag. Við höfum aldrei séð annað eins. Það var líka gaman að 97% þeirra sem keyptu voru nýir viðskiptavinir.“ Spurð um markmið fyrir 2026 segir Hólmfríður að gert sé ráð fyrir svipuðum vexti í ár og á því síðasta. „Við ætlum að halda áfram að vaxa. Tækifærin eru klárlega til staðar. Ég hef líka verið að bæta sérfræðingum í teymið og verið mjög lánsöm með fólk. Ef þú ætlar að vaxa verður þú að fjárfesta í fólki og helst þarf teymið að vera alþjóðlegt. Það lærði ég erlendis þar sem ég var með fólki af 40 þjóðernum í skóla. Það opnaði augu mín fyrir mikilvægi þess að vera ekki með of einsleitan hóp starfsmanna.“ Að lokum segir Hólmfríður að vöruþróun haldi áfram af fullum krafti á árinu og ný vara muni líta dagsins ljós á vormánuðum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni Veruleg skerðing á bílastæðum Málið komið fram á fölskum forsendum Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar 4,6 milljarða samningur Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Jóhann Gunnar ráðinn til Origo Lækka verð á hundruðum vara Þrír nýir eigendur að LEX Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Lækka verð á hundruðum vara Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Þrír nýir eigendur að LEX Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Jóhann Gunnar ráðinn til Origo Nær 100 milljarða aukning hjá LSR Ekki verður af samruna Arion og Kviku Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Miðgildi launa viðskipta- og hagfræðinga 1,3 milljónir Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Laun hér þau hæstu í Evrópu Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert „Erum ennþá í pólitík,“

Share this article