Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

„Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum

  • What: Concerns about transportation to Vestmannaeyjar
  • Impact: Residents and visitors may be affected by ongoing transportation issues
Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.4.2026 | 23:40 „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stöðuna í samgöngum við Vestmannaeyjar vera óboðlega. Þá eigi Vestmannaeyingar ekki að þurfa að lifa á yfirlýsingum og frösum ríkisstjórnarinnar. Greint var frá því fyrr í kvöld að erindi hefði verið sent frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum til innviðaráðherra og vegamálastjóra ásamt formönnum ríkisstjórnarflokkanna þar sem varað er við neyðarástandi í samgöngum við Vestmannaeyjar. Óboðleg staða „Þetta er bara algjörlega óboðleg staða. Það er komið fram í miðjan apríl. Það er í rauninni komið inn í ferðamannatímabilið og Vestmannaeyingar lifa á ferðamönnum. Það eru íþróttamót þarna og það styttist í einn stærsta íþróttaviðburðinn í Vestmannaeyjum, Puffin-hlaupið, sem verður fyrstu helgina í maí. Þetta setur bara allt úr skorðum og það er bara óboðlegt að Landeyjarhöfn sé enn lokuð,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is. Eins og greint hefur verið frá hefur dýpkunin við Landeyjarhöfn ekki gengið eins og vonir stóðu til. Þá hefur aukinheldur komið upp bilun í Herjólfi sem valdið hefur skertri starfsemi. Frétt af mbl.is Bilun stöðvar Herjólf tímabundið „Samgöngur eru grunninnviður“ „Þetta er bara ekki ásættanlegt. Þarna er fólk sem þarf að sækja þjónustu, læknisþjónustu, koma vörum til og frá, eða bara halda úti almennum atvinnurekstri. Ég ætla bara að minna á að þetta er bara grunninnviður. Samgöngur eru grunninnviður og þegar allt er í lagi þá eru sjö ferðir á dag í Landeyjarhöfn og núna eru tvær ferðir í Þorlákshöfn. Það tekur fjóra tíma að sigla. Biðlistar eftir að komast í ferðina safnast upp. Svo hefur ríkisstjórnin talað endalaust um það að setja samgöngumál á oddinn en það gerist ekkert þarna, ekki neitt, og Vestmannaeyingar eiga ekki að lifa á yfirlýsingum og frösum ríkisstjórnarinnar,“ segir Guðrún. Aukinheldur bendir hún á að ekki hafi verið bætt við flugferðum eða stutt við flugferðir Vestmannaeyinga eins og t.a.m. með niðurgreiðslum þeirra, en í erindi bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum hefur einmitt verið óskað eftir því að flugferðum til eyjarinnar verði fjölgað. „Samgöngur eru bara lífæð allra og þetta hefur veruleg áhrif á allt líf í Vestmannaeyjum. Mér finnst þetta dónaleg og óforsvaranleg framkoma gagnvart Vestmannaeyingum. Þeir eiga ekki að þurfa að vera stöðugt að berjast fyrir jafn sjálfsögðum hlut og samgöngum.“ Ástandið sjaldan verið jafn slæmt Sjálf er Guðrún þingmaður Suðurkjördæmis og þar af leiðandi Vestmannaeyjabæjar. Aðspurð segir hún þingmenn þess kjördæmis vera góðan hóp sem hyggst beita sér fyrir Vestmannaeyjar. „Ég mun gera það sömuleiðis sem þingmaður Vestmannaeyinga. Ég hef reynt það af öllum mætti en ástandið núna - ég held að það hafi sjaldan verið jafn slæmt og það er búið að vera í vetur. Það eru auðvitað búnar að vera stanslausar austanáttir þannig að höfnin er orðin yfirfull af sandi og nú verður ríkið að koma með einhverjar aðgerðir til að bæta úr þessu.“ Frétt af mbl.is Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hefja gjaldtöku við Egilshöll „Fengum bara einhverja heilaþoku“ „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Lestarstjóri fann 20 tarantúlur Myndir sýna jökulinn hverfa smám saman Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Hefja gjaldtöku við Egilshöll „Fengum bara einhverja heilaþoku“ „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Lestarstjóri fann 20 tarantúlur Myndir sýna jökulinn hverfa smám saman Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article