Innlent | Morgunblaðið | 18.4.2026 | 9:00 Nýsköpun knýr hagvöxt framtíðar Albert Þór Jónsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Marel varð til á níunda áratugnum. Þróun á rafeindavogum var lykillinn að stofnun fyrirtækisins en Marel er dæmi um vel heppnaða tengingu milli háskólasamfélagsins og atvinnulífsins. Össur var stofnað árið 1971 í bílskúr í Kópavogi og er leiðandi á sínu sviði í heiminum en Össur hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur með það fyrir augum að auka hreyfanleika fólks. Saga þessara framúrskarandi fyrirtækja og uppruni ætti að vera Íslendingum innblástur til frekari nýsköpunar. Nýsköpun er nefnilega það sem kom þessum framúrskarandi fyrirtækjum á heimskortið og bæði urðu til vegna nýsköpunar og nýrra og framúrstefnulegra lausna. Nýsköpun í atvinnulífi, rekstri fyrirtækja og opinberra aðila er verðmæti framtíðar. Velgengni fyrirtækja í framtíðinni mun ráðast af því hvernig stjórnendur ná að koma auga á ný vaxtartækifæri. Virðiskeðjur fyrirtækja breytast hratt í stafrænum heimi þannig að mörg störf hverfa og ný störf verða til sem eykur kröfu um leiðtogafærni í fyrirtækjum og hjá opinberum aðilum. Nýsköpun og hvers konar hagnýting hugvits er mikilvæg forsenda fjölbreytts atvinnulífs, sterkrar samkeppnisstöðu, hagvaxtar og velferðar þjóðar, ekki síst í ljósi þeirra þjóðfélagsbreytinga sem vænta má í atvinnu- og menntamálum vegna örra tæknibreytinga. Einnig má búast við að borgarskipulag muni taka mið af nýjum þörfum í stafrænum heimi. Borgarskipulag, vinnumarkaður og húsnæðisþróun munu taka mið af þörfum framtíðar og forðast þarf fjárfrekar fjárfestingar í innviðum sem geta verið úreltir á morgun vegna hraðra tæknibreytinga. Nýsköpun í rekstri og færni starfsmanna er verðmæti framtíðar og mun hafa úrslitaáhrif á velgengni fyrirtækja í einkarekstri og opinberum rekstri. Verkefni sem auka hagvöxt og skapa atvinnutækifæri Gjaldeyrisvarasjóður: Nýta 200 ma.kr. af gjaldeyrisvarasjóði Íslands í uppbyggingu og tækifæri í líftækni, lyfjaiðnaði, fjártækni, heilsutækni, hátækni og gervigreind. Auka samstarf íslenskra háskóla og atvinnulífsins og taka ákvörðun um að byrja á mörgum verkefnum sem skapa fjölda atvinnutækifæra. Í þessu skiptir miklu að hugsa stórt en væntingar styðja hegðun sem leiðir af sér kraft til athafna og framtakssemi. Innviðauppbygging: Sundabraut, tvöföldun vega, nýtt sjúkrahús á Vífilsstöðum eða Keldnaholti og hjúkrunarheimili um allt land. Virk eignastýring: Selja óarðbærar fjárfestingar hjá ríkissjóði og setja fjármagn í ný arðbær fjárfestingarverkefni. Ráðstafa háum fjárhæðum í arðbær og verðmætaskapandi verkefni sem skapa spennandi atvinnutækifæri til framtíðar fyrir sem flesta og auka þannig hagvöxt til lengri tíma. Hagræða í ríkisrekstri: Með stafrænum viðskiptamódelum og betri þjónustu. Einfalda yfirbyggingu og stytta ákvarðanatöku sem eykur verðmætasköpun. Umbreyta ríkisrekstri í einkarekstur: Mikilvægt er að umbreyta ríkisrekstri í einkarekstur í heilbrigðismálum, menntamálum og samgöngumálum þar sem tækifæri skapast og skilar mestri arðsemi fyrir þjóðarhag. Endurhugsa þarf allan opinberan rekstur með hagkvæmni, betri rekstur og nýsköpun að leiðarljósi. Á næstu misserum þarf ríkisstjórnin að koma fram með hvata sem fjölga störfum sem auka hagvöxt með skattalækkunum, skattaívilnunum og með því að beina fjármagni í hagvaxtaraukandi atvinnugreinar í stafrænni tækni, líftækni, heilsu, fjártækni og gervigreind. Albert Þór Jónsson, viðskiptafræðingur (cand. oecon.). Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Nýsköpun knýr hagvöxt framtíðar Loka Hormússundi aftur Yfir 38 þúsund konur og stúlkur drepnar Nálgast gervigreind eins og véfrétt Lönduðu bæði dyravörðum og útkastara Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsa yfir furðu og vonbrigðum „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Agabrot flugstjórans ólíðandi Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Réðst á leigubílstjóra X26: Tímamót í Rangárþingi eystra Allt að 10 stiga hiti Guðmundur Ingi færir sig um set Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Nýsköpun knýr hagvöxt framtíðar Loka Hormússundi aftur Yfir 38 þúsund konur og stúlkur drepnar Nálgast gervigreind eins og véfrétt Lönduðu bæði dyravörðum og útkastara Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Réðst á leigubílstjóra X26: Tímamót í Rangárþingi eystra Allt að 10 stiga hiti Guðmundur Ingi færir sig um set Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá