Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Akureyringar lagfæra lýsinguna

  • What: Road lighting renovation in Hvalfjardargongur
  • Impact: Traffic restrictions and disruptions for workers and residents
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 8:21 Akureyringar lagfæra lýsinguna Það útheimtir þolinmæði og vönduð vinnubrögð að endurnýja lýsinguna í Hvalfjarðargöngunum. Starfsmenn Rafmanna ehf. vinna verkið á nóttunni alla virka daga vikunnar. Ljósmynd/Vegagerðin/Anton Brink Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Það eru rafverktakar á Akureyri, Rafmenn ehf., sem vinna að endurnýjun á lýsingu í Hvalfjarðargöngum. Nokkurt uppnám varð þegar upplýst var að göngin verða lokuð næstu vikurnar frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Áætlað er að verkinu ljúki 29. maí. Aðeins er leyfður neyðarakstur í gegnum göngin á þessum tíma svo ljóst er að lokunin mun hafa mikil áhrif. Sérstaklega á það við starfsfólk sem vinnur vaktavinnu en þarf nú að aka fyrir Hvalfjörð þegar það kemur til vinnu eða lýkur vinnu á nóttunni. „Ljóst er að lokanir valda vegfarendum óþægindum og er það miður, en um er að ræða óhjákvæmilega framkvæmd sem miðar að því að tryggja öryggi og uppfæra mikilvæga innviði til samræmis við nútímakröfur,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Vegagerðarinnar. Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í verkið í nóvember í fyrra. Rafmenn ehf. verktakar, Akureyri, áttu langlægsta tilboðið. Buðust þeir til að vinna verkið fyrir 311,4 milljónir króna. Var það um 80 milljónum króna lægra en áætlaður verktakakostnaður, sem var 391,6 milljónir. Alls bárust sex tilboð í verkið. Vegagerðin ákvað að ganga til samninga við Rafmenn. Ljósmynd/Vegagerðin/Anton Brink Verkið felst í heildarendurnýjun á lýsingarbúnaði ganganna, sem hefur verið í notkun í um þrjá áratugi, eða frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Um er að ræða daglýsingu við gangamunna, almenna veglýsingu og tengd kerfi. Allur eldri búnaður, þar á meðal lampar, strengir og stýringar, er fjarlægður og nýr, dimmanlegur búnaður settur upp sem uppfyllir kröfur samtímans. Settir verða upp nýir LED-lampar, nýir rafstrengir og nýr stýribúnaður. Framkvæmdir í jarðgöngum eru flóknar og fara fram í mjög þröngu rými, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar. Unnið er í allt að sex metra hæð með notkun vinnulyfta sem taka verulegt pláss á akbrautum og þarf auk þess að færa reglulega til. Við niðurtöku er eldri búnaður fjarlægður jafnóðum, sem þýðir að efni getur fallið á akbraut áður en það er fjarlægt. Vinnulyftan tekur mikið pláss enda er unnið í allt að sex metra hæð. Vinnusvæðið síbreytilegt Á sama tíma er lýsing á viðkomandi svæðum tekin úr notkun, sem getur valdið verulega skertum birtuskilyrðum. Við uppsetningu nýrra strengja er unnið með stór og fyrirferðarmikil strengjakefli, einkum við gangamunna, sem þrengir að vinnusvæðinu enn frekar. Vinnusvæðið er jafnframt síbreytilegt þar sem tæki og búnaður eru stöðugt færð til, sem gerir ómögulegt að afmarka það með öruggum hætti gagnvart umferð. Þá sé ekki unnt að nýta loftræstikerfi ganganna meðan á framkvæmdum stendur án þess að skapa óviðunandi aðstæður fyrir starfsmenn. Tímasetning framkvæmdanna á vormánuðum var ákveðin með það í huga að nýta tímabil þar sem almennt má gera ráð fyrir góðri færð um Hvalfjörðinn, en áður en umferð eykst með sumrinu. Göngin verða einnig lokuð á opinberum frídögum sem hitta ekki á helgi. Þar má nefna sumardaginn fyrsta, 1. maí, uppstigningardag og annan í hvítasunnu. Ferðalangar eru hvattir til að hafa það í huga við skipulagningu ferðalaga, t.d. þegar farið er norður á Andrésar Andar-leikana 22.-25. apríl, bendir Vegagerðin á. „Vegagerðin hefur skilning á þeim áhrifum sem lokanir hafa á daglegt líf og atvinnustarfsemi á svæðinu og leitast við að halda raski í lágmarki án þess að stefna öryggi eða framgangi verksins í hættu.“ Lögð verði áhersla á að ljúka framkvæmdum eins fljótt og auðið er og tryggja að þessi tímabundnu áhrif vari sem skemmst. Þá sé stefnt á að upplýsa um framgang verksins reglulega á næstu vikum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Veruleg skerðing á bílastæðum „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Olíuverð hríðfellur „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ 300 ferðir á spítalann Agabrot flugstjórans ólíðandi Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað

Share this article