Innlent | Morgunblaðið | 19.4.2026 | 8:00 Kynlegir kvistir Setja bókamerki Tungutak | pistill Þórhalls Eyþórssonar úr Morgunblaðinu Nýlega átti Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, stórafmæli. Af því tilefni „ristu“ vinir og samstarfsmenn 42 (raunar 43) greinar eða „kynlega kvisti“ til heiðurs afmælisbarninu. Í riti sem er tileinkað svo öflugri lærdómskonu kennir vitaskuld ýmissa grasa; hér verður aðeins minnst á nokkur þeirra fræðilegu skrautblóma. Ekki þarf að kippa sér upp við að bókmenntafræðingur beiti bókmenntagreiningu á ljóðrænan texta (Sveinn Yngvi Egilsson). Meiri tíðindum sætir að bókmenntafræðingur greinir ljóð á málfræðilegan hátt (Torfi H. Tulinius) – og mætti verða kollegum hans fyrirmynd. Í „Skammaryrðum Guðrúnar“ eftir Jóhannes Gísla Jónsson fjallar málfræðingur aftur á móti um bókmenntatexta eftir nöfnu fræðikonunnar, skáldkonuna góðu frá Lundi. Aðrir höfundar eru skömmóttir á annan hátt: „Hvernig „skammar“ maður vinnukonu?“ spyr Helgi Skúli Kjartansson. Eðlilega kemur nafnið Guðrún oft fyrir í þessu riti. Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar bókstaflega „Bréf til Guðrúnar“. Greinarnar „Guðrún fyrr og síðar“ og „Dönsk tunga“ eru báðar eftir eðalbornar Guðrúnar, Kvaran og Nordal. Loks finna enn aðrir tilbrigðavinkil þar sem svokölluðu „Ólafsfjarðareignarfalli“ er hugvitsamlega beitt í titlinum: „Afmælinu Guðrúnar ber að fagna!“ (Sigríður Sigurjónsdóttir). Hin heiðraða Guðrún er brautryðjandi í rannsóknum á máli og kyni. Út frá þeim þræði spinna þeir Einar Freyr Sigurðsson og Anton Karl Ingason kynlegar greinar. Gríðarlegur lærdómur dylst í framlagi Katrínar Axelsdóttur (sprúðlandi fornírska), Jóns Axels Harðarsonar (torráðin rúnarista) og Ármanns Jakobssonar (morkin stakyrði, þ.e. orð sem koma aðeins einu sinni fyrir í heimildum). Þá veltir einn höfundur (ég sjálfur) fyrir sér hver hafi verið besta skáldið, Egill Skalla-Grímsson, Finnur Jónsson eða Sigurður Nordal (svarið er augljóst). Heilmikil þungavigtarmálvísindi eru þarna innan um, m.a. í hjartnæmri framsetningu Höskuldar Þráinssonar og Mirkos Garofalos. Svo sem vænta mátti leggja heimsfrægir lærdómsmenn lóð á vogarskálarnar, enda þótt þeir séu löngu liðnir. Rasmus Rask (í íslenskum búningi Jóhannesar B. Sigtryggssonar) staðhæfir að bókstafurinn q sé ónýtur í íslensku – „eða heldur skaðlegur“. Íslandsvinurinn Willard Fiske, bókasafnarinn knái við Cornell-háskóla, kveður óð til Íslands (sem Þórunn Sigurðardóttir birtir). Loks vekur athygli að höfundar greinanna eru ekki bara frá ýmsum tímum heldur líka á öllum aldri, m.a. börn frá 19. öld (í útgáfu Ástu Svavarsdóttur). Alkunna er að málfræðingar eru óttalegir kúristar. Það verður ástundunarsömu málfræðipari (Oddi Snorrasyni og Sólveigu Hrönn Hilmarsdóttur) tilefni til að kúra svolítið yfir orðsifjum og er vel við hæfi. Dr. Þórhallur Eyþórsson Kristinn Ingvarsson – KRI Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Agabrot flugstjórans ólíðandi Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað Nýjast á mbl.is » Akureyringar lagfæra lýsinguna Pétur vill rauða dregilinn út Kirkjan verður af háum fjárhæðum Allt að 11 stiga hiti Íþróttaparið fræga í sitt hvora áttina Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum 300 ferðir á spítalann „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk þurfi að vera hrætt Alveg eins ljúffengt og hið erlenda kex Milljónir gengu út í kvöld Segir ÁTVR hafa brotið gegn eigin einkaleyfi Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Frjáls ferða sinna eftir árás á leigubílstjóra 300 ferðir á spítalann Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur X26: Ekki kosið í fjórum sveitarfélögum Halla enn á lægri launum en Ragnar Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Halla enn á lægri launum en Ragnar Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Dýrar viðgerðir á leiguhúsnæði fyrir hælisleitendur „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Sameiginleg ákvörðun að hunsa Silfrið Laun formanns VR hækkuð 300 ferðir á spítalann Svaraði skemmdarvörgum með regnbogafána Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Vinsælum veitingastöðum lokað