Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Viðskiptablaðið

Nýtt landamærakerfi veldur usla á flugvöllum ESB

  • What: Flights were canceled due to technical issues with the Entry-Exit System (EES) in the Schengen area.
  • Impact: Passengers traveling between Milan and Manchester were affected.
Read Full Article →

Fjöldi farþega Ryanair sem átti bókað flug frá Mílanó til Manchester í síðustu viku missti af flugi sínu vegna mikilla tafa í vegabréfaeftirliti. Flugfélagið hefur staðfest þetta í samtali við BBC en tafirnar tengjast nýju landamærakerfi innan ESB. Landamærakerfið, sem ber heitið Entry-Exit System (EES), hefur verið tekið í notkun í áföngum undanfarin misseri og hefur valdið löngum biðröðum á evrópskum flugvöllum. Fyrr í mánuðinum misstu farþegar EasyJet af flugi sínu frá Mílanó sem voru einnig á leið til Manchester. Sjá einnig Búast við eldsneytisskorti innan fárra vikna Nýja kerfið krefst þess að ríkisborgarar utan ESB, þar á meðal Bretar, skrái lífkennagögn eins og andlitsmynd og fingraför þegar ferðast er innan Schengen-svæðisins. Samkvæmt áætlun átti kerfið að vera fullinnleitt 10. apríl sl. en innleiðingin hefur gengið misvel eftir löndum. Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sagði í síðustu viku að kerfið væri að virka mjög vel í flestum aðildarríkjum og að engin vandamál hefðu komið upp í meirihluta Evrópuríkja. Frá því að kerfið var tekið í notkun í október hafa meira en 52 milljónir landamæraferða verið skráðar. Þar af hefur 27 þúsund einstaklingum verið synjað um inngöngu á Schengen-svæðið og voru 700 taldir vera möguleg öryggisógn.

Share this article