- What: New police chief appointed
- Impact: Leadership change in northern Iceland
Innlent | mbl | 21.4.2026 | 7:00 Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan Halla Bergþóra tók við sem ríkislögreglustjóri í gær. mbl.is/Eyþór Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Beint: Kristrún fundar með JEF í Finnlandi Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Halla Bergþóra Björnsdóttir hóf í gær störf sem ríkislögreglustjóri eftir að hafa verið skipuð í stöðuna til næstu fimm ára af dómsmálaráðherra. Hún tekur við starfinu af Sigríði Björk Guðjónsdóttur en áður gegndi Halla Bergþóra stöðu lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins í rétt tæp sex ár, starfi sem Sigríður Björk hafði áður innt af henti, fyrst kvenna. „Ég er bara mjög þakklát ráðherra fyrir að treysta mér fyrir þessu starfi. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er mjög mikilvægt starf og tek það alvarlega. Ég ætla mér að gera vel,” segir Halla Bergþóra, sem ræddi við blaðamann í húsnæði ríkislögreglustjóra við Rauðarárstíg á sannkölluðum góðviðrisdegi í gær. Af hverju ákvaðstu að sækja um þetta starf ? „Ég hef mikinn áhuga á löggæslu. Ég er búinn að vera lögreglustjóri á Akranesi í sex ár og Norðurlandi eystra í um sex ár og svo í höfuðborginni í sex ár. Mér fannst að reynsla mín og þekking væri eitthvað sem gæti nýst í þessu starfi,” svarar hún og nefnir að takast þurfi á við ýmis brýn verkefni í embættinu. „Svo hefur maður áhuga á að vinna fyrir fólkið í landinu og hefur líka ákveðna sýn um hvað sé hægt að gera.” Var ekki góður verjandi Áður en Halla Bergþóra hóf feril sinn sem lögreglustjóri, fyrir um 18 árum síðan, starfaði hún í dómsmálaráðuneytinu og sinnti þar meðal annars málum tengdum lögreglunni og fangelsum. Einnig vann hún hjá sýslumanninum á Húsavík þar sem lögreglumál voru einnig á hennar könnu. mbl.is/Karítas Hún kveðst hafa fengið lögreglubakteríuna þegar hún var sumarstarfsmaður hjá lögreglunni í Þingeyjarsýslu, fyrst kvenna, en þá stundaði hún á sama tíma laganám við Háskóla Íslands. „Ég fór í lögmennsku og varð verjandi og þá sá ég strax að það átti engan veginn við mig. Ég var ekkert góður verjandi, ég var alltaf lögreglumiðuð,” segir hún og hlær. „Þannig að já, lögregluhjartað hefur slegið síðan.” Áskorun þegar kemur að rekstri Innt eftir því hvort hún muni leggja áherslu á eitthvað sérstakt í nýja starfinu kveðst Halla Bergþóra ætla að byrja á því að kynnast starfsfólkinu, heimsækja allar starfsstöðvarnar og tala við helstu samstarfsaðila ríkislögreglustjóra, þar á meðal lögreglustjóra landsins, enda sé ríkislögreglustjóri samhæfingaraðili fyrir alla lögreglu landsins. Hún nefnir einnig að embættinu fylgi áskorun þegar kemur að rekstri. Þar þurfi sífellt að hafa augun á boltanum. Sérsveitin að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Stendur á bak við sýn ráðherra Fyrir 12 árum síðan var lögregluumdæmum á landinu fækkað úr 15 í 9 . Spurð hvort hún hafi hug á frekari fækkun lögreglustjóra bendir ríkislögreglustjóri á dómsmálaráðherra í þeim efnum. Hann ákveði slíkt. „Ég mun auðvitað standa bak við þá sýn sem ráðherra hefur, styðja hann og vera til ráðgjafar. Auðvitað er ríkislögreglustjórinn mikið til ráðgjafar við stjórnvöld, þannig að ég mun bara koma inn í það.” Nýta sér gervigreindina Ýmis verkefni sem tengjast öryggis- og varnarmálum eru á borði ríkislögreglustjóra, þar á meðal fjölþáttaógnir sem mikið hafa verið í umræðunni upp á síðkastið. Fram kemur í nýlegri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra að breytt öryggisumhverfi og aukin alþjóðleg spenna geti þýtt að Ísland verði skotmark óvinveittra ríkja sem beita fjölþáttaaðferðum til að veikja innra öryggi ríkisins. Frétt af mbl.is Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja mbl.is/Eyþór Halla Bergþóra nefnir einnig gervigreindina til sögunnar og bendir á að víða um heim sé lögreglan farin að nýta sér hana við störf sín. Lögreglan hérlendis þurfi að tileinka sér hana í auknum mæli og fylgjast vel með þróun mála, enda hlutirnir fljótir að breytast í netheimum. Öflugri kynferðisbrotadeild Spurð hverju hún hafi helst komið til leiðar í fyrra starfi sínu sem lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins svarar hún að lögð hafi verið áhersla á að efla lögregluna í heild sinni og það hafi tekist. Nefnir hún tækni og búnað, þar á meðal lögreglubíla, í því samhengi. Ljósmynd/Lögreglan Sömuleiðis hafi lögreglan eflst varðandi málefni sem snúi að farsæld barna, þar sem nýtt svið hafi verið stofnað innan lögreglunnar. Samfélagslöggæslu hafi einnig verið komið á fót og með tilkomu hennar hafi til að mynda dregið úr hnífaburði ungmenna. Frétt af mbl.is Vonast til að draga úr auknu ofbeldi barna Frétt af mbl.is „Passaðu að löggan taki þig ekki!“ Einnig bendir hún á að aukið fjármagn sem fékkst í kynferðisbrotadeild lögreglunnar hafi aukið hraðann við afgreiðslu slíkra mála umtalsvert. „Í mínum huga er málshraði það sem skiptir öllu máli. Að fólk fái málið sitt unnið hratt og örugglega. Það mætti alltaf gera betur, en það hefur samt verið unnin mjög mikil og öflug vinna þar. Við höfum fækkað opnum málum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu mjög mikið, úr 20.000 niður í 12.000,” segir hún, greinilega stolt af betri stöðu en áður í þessum viðkvæma málaflokki. mbl.is/Eggert Jóhannesson Skrifa ekki undir skýrslur með nafni Aukið ofbeldi gagnvart lögreglumönnum og skemmdarverk hafa verið í umræðunni að undanförnu. Aðspurð telur Halla Bergþóra lögregluna þurfa að takast á við vandann í sameiningu. Nú þegar þurfi lögreglumenn ekki lengur að skrifa undir skýrslur með nöfnum sínum heldur nægir að þeir skrifi niður lögreglunúmer sín. Þetta segir hún eðlilega breytingu í nýju og harðara umhverfi en áður. Frétt af mbl.is „Það beinist að lögreglumönnum ákveðið ofbeldi“ „Þetta er gert til varnar fjölskyldum þeirra sem eru að vinna í framlínunni og er auðvitað mjög mikilvægt,” segir hún og bætir við að mikil samstaða hafi verið um þessa breytingu innan lögreglunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Glæpahópar um 20 talsins Spurð í þessu samhengi út í fjölda skipulagðra glæpahópa hérlendis nefnir hún að þeir séu í kringum 20 talsins. Flestir hafi þeir að geyma blöndu af íslenskum einstaklingum og þeim sem eru af erlendu bergi brotnir. Frétt af mbl.is Glæpastarfsemi orðin mun skipulagðari „Við á Íslandi erum kannski aðeins öðruvísi en aðrir því þeir eru oft samsettir úr fleiri en einu þjóðerni,” segir ríkislögreglustjórinn nýi og telur ástæðuna vera smæð þjóðarinnar. Í öðrum löndum skiptist glæpamennirnir meira í hópa eftir þjóðernum. „Greiningadeildin [hjá ríkislögreglustjóra] er rosalega mikilvæg í því að finna út hvernig landið liggur,” bætir hún við um kortlagningu glæpahópanna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Beint: Kristrún fundar með JEF í Finnlandi Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð „Sættum okkur ekki við samningaviðræður í skugga hótana“ Aðsend grein: Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan Komu kajakræðurum til bjargar Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hugrekkið kostaði hana lífið Spyr frá hvaða öld kerfi Veitna sé Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Óljósir samningar um aðlögun Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð allt að 20 stigum Opið lengur í sundlauginni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Gunnar kjörinn formaður Veiðar á langreyði áformaðar í sumar Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils X26: Tvísýn barátta í Rangárþingi ytra Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð „Sættum okkur ekki við samningaviðræður í skugga hótana“ Aðsend grein: Þorgerður Katrín og upplýsingaóreiðan Fékk lögreglubakteríuna fyrir norðan Komu kajakræðurum til bjargar Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Ljúfsárt að kveðja þingið Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Hiti gæti náð all