Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hönnunin endurspegli staðaranda

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 21.4.2026 | 21:00 Hönnunin endurspegli staðaranda Svona sjá hönnuðir fyrir sér að hótelið nýja gæti orðið. Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Hafinn er undirbúningur að byggingu 62ja herbergja afþreyingarhótels á Hólmavík á vegum félagsins Hótel Strandir. Undirritaður var nýlega samningur félagsins og Strandabyggðar um leigu af sveitarfélaginu á lóð fyrir bygginguna, sem er ætlaður staður á svokölluðu Jakobínutúni sem er við íþróttamiðstöðina á Hólmavík. Það er á vinstri hönd þegar ekið er inn í byggðarlagið, en frá nefndum stað er gott útsýni yfir byggðarlagið og út á Steingrímsfjörðinn. Vinnu sveitarfélagsins við aðalskipulag á svæðinu er lokið, eftir um það bil tveggja ára ferli, og með því getur hafist frekari undirbúningur fjármögnunar og framkvæmda við hótelið. Skrefin að markinu eru mörg. Heildstæð upplifun „Við sjáum mikil tækifæri í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og teljum svæðið eiga mikið inni. Hólmavík er miðsvæðis á Vestfjörðum og er því kjörinn útgangspunktur til að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Þaðan er stutt til Ísafjarðar og jafnframt greið leið í óspillta náttúru norður í Árneshreppi. Við sjáum tækifæri í að byggja upp heildstæða upplifun sem tengir saman náttúru, menningu og sérstöðu svæðisins í nánu samstarfi við nærsamfélagið,“ segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir sem er einn þriggja eigenda Hótel Stranda. Hinir eru Friðjón Sigurðarson, Karl Sigfússon – en tvö þau fyrstnefndu hafa sterk tengsl við Strandirnar. „Strandir eru frá fyrri tíð þekktar fyrir ríka þjóðtrú og galdrahefð sem gefur svæðinu einstaka menningu og upplifunargildi. Markmiðið er ekki að byggja bara hótel heldur að skapa upplifun sem byggist á sérstöðu svæðisins, kyrrðinni og náttúrunni. Til staðar þarf að vera tenging við svæðið og á Ströndum viljum við að hótelið minni á sérstöðu landshlutans. Hönnun mun því að nokkru endurspegla staðarandann en auðvitað líka alveg frábær byggingarlist.“ Veitingstaður og heilsulind Auk 62 herbergja er á Hótel Ströndum gert ráð fyrir veitingastað, bar og heilsulind. Veitingaþjónustunni og starfseminni þar er ætlað stærra hlutverk þar sem ferðamenn, heimamenn, tjaldsvæðisgestir og aðrir geti notið þjónustunnar. Heildarstærð hússins er 3.150 fermetrar á þremur hæðum auk kjallara. Á þessum slóðum stendur til að hótelið nýja verði. Hér sést íbúðabyggð, verslun staðarins og inn í botn Steingrímsfjarðar. mbl.is/Sigurður Bogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur Öspin fær uppreisn æru Stjarnan vann á Króknum eftir óbærilega spennu Hönnunin endurspegli staðaranda Chelsea í frjálsu falli í deildinni Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaðarsamt ójafnvægi Leyndardómur aðlögunarinnar Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Þórdís þakkaði fyrir sig Mest lesið Í gær Í vikunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Bílvelta á Hringbraut Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Sérsveitin kölluð út á Akureyri Nýjast á mbl.is » Grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur Öspin fær uppreisn æru Stjarnan vann á Króknum eftir óbærilega spennu Hönnunin endurspegli staðaranda Chelsea í frjálsu falli í deildinni Umræðan Homo Reykjavicus Hvert stefnum við með skipulaginu? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Mest lesið Í gær Í vikunni Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Andlát: Birgir Valur Ágústsson Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Bílvelta á Hringbraut Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Guðmundur Ingi færir sig um set Sérsveitin kölluð út á Akureyri

Share this article