Innlent | mbl | 22.4.2026 | 8:25 Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Ný könnun HMS bendir til þess að búsetuóskir um fjölbýli beinist ekki síður að fjölbýlishúsum með færri íbúðum. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð » Fleiri tengdar fréttir Níu af hverjum tíu fasteignasölum töldu virkni á fasteignamarkaði litla miðað við árstíma í byrjun apríl og algengast er að færri en fjórir skoði hverja eign í fyrstu viku sölutíma. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsa- og mannvirkjastofnunar. Íbúðum til sölu heldur jafnframt áfram að fjölga en í byrjun apríl voru um 6.200 íbúðir til sölu á landinu öllu og hafði þeim þá fjölgað um tæplega 30% á einu ári. 9 mánaða birgðatími Framboðið hefur aukist hlutfallslega mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem eru nú um 67% fleiri íbúðir til sölu en í apríl 2025. Birgðatíminn, þ.e. sá tími sem tæki að selja núverandi framboð miðað við söluhraða síðasta mánaðar, mælist nú um 9 mánuðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins samanborið við um 6 mánuði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landsbyggðinni. Munu sekta leigusala Á leigumarkaði hefur almenn skráningarskylda leigusamninga verið í gildi frá áramótum. Í skýrslunni kemur fram að HMS hyggst nýta heimild til að sekta leigusala sem ekki sinna skráningarskyldu finnist skýr dæmi um vanrækslu. Skráningarskyldunni er ætlað að bæta yfirsýn yfir leigumarkaðinn en leiguskrá geymir mikilvægar upplýsingar um gilda leigusamninga. Upplýsingar úr leiguskrá leiða til að mynda í ljós að aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði hærra leiguverð en innfæddir leigjendur fyrir smærri leiguíbúðir þegar leigt er af einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri taka óverðtryggð lán Lánamarkaðurinn hefur þá tekið nokkrum breytingum frá því að vaxtadómarnir féllu síðasta haust vegna breytts lánaframboðs. Hlutdeild verðtryggðra lána á breytilegum vöxtum af nýjum íbúðalánum til heimila hefur skroppið verulega saman eftir vaxtadóminn en hlutdeild óverðtryggðra lána hefur aukist á móti. Í febrúar síðastliðnum tóku heimilin ný óverðtryggð lán fyrir hærri upphæð heldur en verðtryggð lán, umfram uppgreiðslur, í fyrsta skipti í þrjú ár. Fólk vill færri íbúðir á stigangi Á byggingarmarkaði var íbúðauppbygging umfram nýja íbúðaþörf í fyrra vegna lítillar fólksfjölgunar. Enn er talsverður fjöldi íbúða í virkri uppbyggingu samkvæmt marstalningu HMS, en mikill meirihluti íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í dag eru í stórum fjölbýlum með 17 eða fleiri íbúðum í stigagangi. Ný könnun HMS bendir hins vegar til þess að búsetuóskir um fjölbýli beinist ekki síður að fjölbýlishúsum með færri íbúðum. Könnunin sýndi jafnframt að viðhorf til skipulagsmála eru misjöfn eftir aldri og búsetu. Þétting byggðar mætir mestri andstöðu meðal þeirra sem eldri eru og þeirra sem búsettir eru í úthverfum Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Skólum lokað í sænskum bæ eftir hótun Þegar byrjað að treysta varnirnar Íslendingar geta verið mjög stoltir af þessum strákum Í ógleymanlegri safaríferð í Suður-Afríku Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Kostnaðarsamt ójafnvægi „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Bílvelta á Hringbraut Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Víða bjartviðri en þokuloft vestantil Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Auddi og Rakel opna dyrnar Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Skólum lokað í sænskum bæ eftir hótun Þegar byrjað að treysta varnirnar Íslendingar geta verið mjög stoltir af þessum strákum Í ógleymanlegri safaríferð í Suður-Afríku Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Leyndardómur aðlögunarinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Víða bjartviðri en þokuloft vestantil Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Auddi og Rakel opna dyrnar Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Guðmundur Ingi færir sig um set