Rétt tæplega þúsund kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á landinu öllu voru gefnir út í mars síðastliðnum, samanborið við 807 samninga í febrúar og fjölgaði því um 23% milli mánaða. Kaupsamningum fækkaði hins vegar um 12% miðað við marsmánuð 2025, samkvæmt frétt á vef HMS . Á fyrsta ársfjórðungi var 2.438 kaupsamningu þinglýst sem samsvarar tæplega 11% fækkun frá sama tímabili í fyrra. Birgðatími á höfuðborgarsvæðinu – sem gefur til kynna hversu marga mánuði það tæki að selja allt framboð af íbúðum til sölu ef söluhraði síðasta mánaðar héldist óbreyttur - mældist rúmlega sex mánuðir í mars síðastliðnum miðað við þriggja mánaða meðaltal. Birgðatíminn hefur lengst fyrr alla stærðarflokka frá áramótum samhliða mikilli framboðsaukningu og færri kaupsamningum samanborið við undanfarin tvö ár, samkvæmt HMS. Birgðatíminn er skemmstur fyrir minnstu íbúðirnar en lengist eftir því sem íbúðirnar stækka. „Birgðatíminn hefur lengst mest fyrir stærstu íbúðirnar þar sem hann hefur tvöfaldast á einu ári á sama tíma og birgðatími minnstu íbúðanna lengdist um 14%. Birgðatími 60 til 90 fermetra íbúða er tæplega 40% lengri nú en á sama tíma í fyrra og birgðatími 90 til 120 fermetra íbúða er um 66% lengri.“ Mynd tekin úr frétt HMS. HMS segir að miðað við söluhraða síðasta mánaðar tæki um 3 mánuði að selja allt framboð af fjölbýlisíbúðum sem eru 60 fermetrar eða minni að stærð á meðan það tæki um 11 mánuði að selja allt framboð af íbúðum sem eru stærri en 120 fermetrar. Birgðatíminn mælist um 5,5 mánuðir fyrir 60 til 90 fermetra íbúðir og um 8 mánuðir fyrir 90-120 fermetra íbúðir.