Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áfram raun­verðslækkanir á íbúðamarkaði

Read Full Article →

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,62% í mars samkvæmt nýbirtum tölum HMS . Til samanburðar hækkaði vísitalan um 0,09% í febrúar. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,61%, samanborið við 2,35% í febrúar. „Íbúðaverð hefur nú lækkað um 2,63 prósent að raunvirði undanfarna 12 mánuði, samanborið við 2,70 prósenta lækkun milli ára í febrúar síðastliðnum,“ segir í frétt á vef HMS. HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hélst óbreytt milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,2% á síðustu tólf mánuðum. Í mars hækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,9% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,4% á síðustu tólf mánuðum. Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,7% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,6% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni lækkaði um 0,4% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 1,6% síðasta árið. Mynd tekin úr frétt HMS.

Share this article