Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Framboð aukist um 18% í ár

Read Full Article →

Framboð á íbúðamarkaði hefur aukist um tæp 18% frá áramótum og er rúmlega helmingi meira nú en þegar mest lét um mitt ár 2020, að því er kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS . Í byrjun janúar voru um 5.100 íbúðir til sölu á landinu öllu, en í byrjun mars voru þær orðnar rúmlega 6.000. „Rétt er að geta þess að undanfarin ár hefur framboð íbúða til sölu dregist nokkuð saman þegar líður að jólum og áramótum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en aukist á nýjan leik í upphafi nýs árs. Þrátt fyrir það er framboð íbúða til sölu tæplega 12% meira í dag en þegar mest lét síðasta haust.“ Íbúðum til sölu hefur fjölgað mest á höfuðborgarsvæðinu í ár, eða um tæplega 440 íbúðir samanborið við tæplega 270 íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og rúmlega 160 íbúðir annars staðar á landsbyggðinni. Hlutfallslega hefur framboðið þó aukist mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, eða um fjórðung. Mynd tekin úr mánaðarskýrslu HMS. HMS rekur framboðsaukningu á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess til fjölgunar bæði nýrra og eldri íbúða til sölu. Á landsbyggðinni er framboðsaukningin sögðu að langmestu leyti skýrast af fjölgun nýrra íbúða til sölu sem tengjast margar hverjar tveimur nýjum fjölbýlishúsum á Akureyri.

Share this article