Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Raunverð íbúða lækkað um 2,7%

Read Full Article →

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% í febrúar samkvæmt nýbirtum tölum HMS. Til samanburðar hækkaði vísitalan um 1,7% í janúar. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,35%, samanborið við 2,36% í febrúar. „Íbúðaverð hefur því lækkað um 2,7% að raunvirði síðastliðið ár. Íbúðaverð hefur ekki lækkað meira að raunvirði á ársgrundvelli síðan í desember 2023,“ segir í frétt á vef HMS . HMS gefur út fjórar undirvísitölur yfir verð á fjölbýli og sérbýli á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar. Fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,0% á síðustu tólf mánuðum. Í febrúar lækkaði sérbýli á höfuðborgarsvæðinu um 1,8% milli mánaða og hefur nú hækkað um 3,1% á síðustu tólf mánuðum. Undirvísitala yfir fjölbýli á landsbyggðinni hækkaði um 0,4% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,2% á síðustu tólf mánuðum. Sérbýli á landsbyggðinni hækkaði um 1,7% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,1% síðasta árið.

Share this article