Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Raun­verðslækkun síðast meiri í nóvember 2023

Read Full Article →

Raunverð á íbúðamarkaði hefur lækkað síðustu þrjá mánuði í röð. Vísitala íbúðaverðs hefur lækkað um rétt rúmlega 2%, leiðrétt fyrir verðlagi. „Ársbreyting raunverðs hefur ekki lækkað eins mikið síðan í nóvember 2023,“ segir í nýrri hagsjá Landsbankans. HMS greindi frá því í síðustu viku að vísitala íbúðaverðs hafi hækkað um 1,7% í janúar. Hagfræðideild Landsbankans bendir á að þetta sé mesta hækkun vísitölunnar síðan í febrúar 2024. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 2,36% samanborið við 2,11% í desember. Sjá einnig Íbúðaverð hækkaði um 1,7% í janúar Sé horft til raunverðs, þegar verðhækkanir á húsnæðismarkaði eru settar í samhengi við vísitölu neysluverðs án húsnæðis, lækkaði árstakturinn hins vegar á milli mánaða og fór úr 1,6% lækkun milli ára í 2,0% lækkun. „Við gerum ráð fyrir raunverðslækkunum á milli ára á allra næstu mánuðum, þó nafnverðslækkanir séu ólíklegri.“ Í hagsjánni er bent á að hækkunin í janúar hafi verið drifin áfram af verðhækkunum á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu sem hækkaði um 3,2%. Verð á sérbýli sveiflist mun meira en í tilviki fjölbýlis. Þá er vakin athygli á því að velta á íbúðamarkaði hafi verið töluvert minni nú í janúar en í fyrra, eða fækkað úr 731 í 611. Bent er þó að fjöldinn hafi verið óvenjumikill í janúar 2025.

Share this article