Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þarf árangursríka útlendingastefnu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.4.2026 | 11:38 Þarf árangursríka útlendingastefnu Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kveðst leita jafnvægis milli mannréttindaverndar og virkrar landamæravörslu. mbl.is/Eggert Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Markmiðið með nýju frumvarpi um útlendingamál og verndarsamkomulag Evrópusambandsins (ESB) er að efla landamæragæslu og gera hælisleitendakerfið skilvirkara, segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við Morgunblaðið eftir ríkisstjórnarfund í gær. „Þetta frumvarp snýst um þá lærdóma sem við höfum dregið af flóttamannabylgjunni í Evrópu 2015, sem hvorki kerfin né samfélögin réðu við. Sú endurskoðun hefur staðið lengi yfir og við erum að taka upp ákveðna kafla úr þessum pakka ESB, innleiða þrjár reglugerðir. Það er Eurodac-gagnagrunnurinn. Það er önnur málsmeðferð varðandi Dyflinnarreglugerðina, sem nú heitir því þjála nafni AMMR, en grunnreglan er hin sama, að ríki sem fær umsókn ber ábyrgð á málinu. En viðmiðin breytast, málsmeðferðartími, skýrari og styttri tímamörk, sem allt miðar að því að mál dragist ekki á langinn. Og kæra mun ekki fresta réttaráhrifum. Í því felast býsna sterk skilaboð.“ Með hvaða markmið? „Þetta snýst um betri stjórn á verndarkerfinu í heild sinni. Hraðari málsmeðferð, það er dregið úr áframhaldandi för innan svæðisins eftir að umsækjandi er þangað kominn og hert á öllum kerfum, ekki síst með betri gagnagrunnum. Fólk tekur t.d. eftir því á flugvellinum, nú bætist við andlitsskanni og upplýsingar ferðast í gegnum Schengen-kerfið á rauntíma. Við viljum að fólk á flótta undan stríði eða öðrum hörmunum geti leitað skjóls, en glæpamenn hafa sætt lagi til þess að notfæra sér það. Mitt markmið er að standa vörð um það fólk sem hingað kemur og er raunverulega að flýja stríð.“ Tryggir tæknin það? „Við vitum að skilríki ganga kaupum og sölum, en fólk falsar ekki auðveldlega DNA-sýni eða andlit.“ Misskilningur um ESB Hvað um þá gagnrýni að Evrópusambandið geti nánast skenkt okkur fólk, sem okkur beri að taka á móti? „Við erum ekki að taka upp þær reglugerðir. Það er á misskilningi byggt.“ Evrópuumræðan er hafin hér og þegar orðin nokkuð heit. Hefðurðu engar áhyggjur af því hún trufli þessa umræðu? „Jú, jú, og sumir vilja þyrla upp ryki. En eins og ég nefni, önnur norræn ríki hræðast ekki þetta regluverk nema síður sé. Þar líta flestir svo á að stjórnvöld séu að fá öflugri verkfæri til þess að vinna að þessum málum.“ Sumum finnst það ekki nóg, Svíar, Danir og Ítalir hafa t.d. útvistað úrvinnslu hælisbeiðna út fyrir landsteinana, kæmi það til greina hér? „Ég hef setið fundi um þetta með ráðherrum Norðurlanda og það er alveg rétt, það er rætt í sameiningu, hvar umsækjendur eigi að bíða á meðan mál þeirra er til meðferðar. Ég er mikið gagnrýnd fyrir frumvarp um brottfararmiðstöð, ég sé hörð og ómannúðleg og guð má vita hvað, en þetta er nú stefna Evrópusambandsins að vera með slíkt úrræði og öll hin Schengen-löndin eru með þetta. Það er enginn sem þarf að fara inn í þetta úrræði, sem brottfararmiðstöð verður. Þetta er úrræði fyrir þá sem hafa kært sig í gegnum kerfið, fengið synjun á öllum stöðum og stigum, hafnað allri samvinnu við stjórnvöld, ætla sér ekki að virða ákvörðun íslenskra stjórnvalda. Þá er það barnaskapur að segja sem svo: Í þeim tilvikum ætlum við bara að láta kyrrt liggja. Leyfa fólki bara að vera. Við verðum að geta framfylgt ákvörðunum okkar.“ Þessar nýju tæknilausnir, þær eru viðamiklar og dýrar, en vakna engar aðrar spurningar við að ætla að andlitsgreina heimsbyggðina niður í sex ára aldur? „Jú, þetta er jafnvægislist og þetta er vandi, því við ætlum ekki að gefa afslátt af því að vera réttarríki. Nú horfum við á stöðuna, grípum til aðgerða og reynum að halda þessu jafnvægi milli mannréttinda og þess að geta rekið útlendingastefnu sem nær árangri.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Náttúruvá í Norðlingaholti Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Valur keypti fyrrverandi landsliðsmanninn Eyþór Wöhler stofnar fyrirtæki Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Af hverju fólk festist í afbrotum“ „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Þarf árangursríka útlendingastefnu Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Leita ferðamanns í Þjórsárdal Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Leit hafin að nýju að ferðamanninum Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þegar byrjað að treysta varnirnar Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Náttúruvá í Norðlingaholti Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Valur keypti fyrrverandi landsliðsmanninn Eyþór Wöhler stofnar fyrirtæki Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veigamikið framsal ríkisvalds Borgin fór á mis við nokkra milljarða Þórdís þakkaði fyrir sig Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Leita ferðamanns í Þjórsárdal Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Leit hafin að nýju að ferðamanninum Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Þegar byrjað að treysta varnirnar Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set

Share this article