Innlent | mbl | 22.4.2026 | 14:34 Hækkandi greiðslur til leigjenda fara beint í leiguverð Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Beint: Húsnæðisdagurinn 2026 Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ » Fleiri tengdar fréttir „Margt bendir til þess og tölfræði sýnir að sífellt hækkandi greiðslur til leigjenda frá ríki og sveitarfélögum fari lóðbeint í leiguverð og gott betur,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Húsnæðisbótakerfið verður tekið til heildarendurskoðunar á þessu ári með það að markmiði að sá stuðningur nýtist betur tekju- og eignaminni hópum á húsnæðismarkaði, líkt og ráðherra kynnti í síðustu viku. Í ávarpi sínu á húsnæðisdegi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) í morgun sagði Ragnar Þór húsnæðismálin vera stærsta hagsmunamál fjölskyldna og almennings í landinu. Frétt af mbl.is Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Ekki tekist að byggja samkvæmt eftirspurn Sagði hann skortstöðu á húsnæðismarkaði hafa verið einn stærsta drifkraft verðbólgu og þ.a.l. hárra vaxta síðustu ára og áratuga. Þess vegna væri einkar mikilvægt að byggja meira til að ná jafnvægi til lengri tíma á húsnæðismarkaði. „Það er langstærsta kjaramál samtímans,“ sagði Ragnar. Hann sagði þó ekki nóg að byggja meira, það yrði að byggja rétt. Byggja það sem markaðurinn kallaði eftir en Ragnar sagði ekki hafa tekist vel að byggja samkvæmt eftirspurn. Ragnar tilkynnti í ávarpinu að vinna væri að fara í gang vegna endurskoðunar á byggingarreglugerð og skipulagslögum, m.a. varðandi vaxtamörk. Hann sagði að síðan lögin voru sett árið 2015 hafi mikið breyst hvað mannfjöldaspá varðar og líklegt sé að 70 þúsund íbúa aukning á höfuðborgarsvæðinu skv. mannfjöldaspá muni nást jafnvel 7-10 árum fyrr en ætlað var. Frétt af mbl.is Beint: Húsnæðisdagurinn 2026 Samtal við sveitarfélög Sagðist hann sem ráðherra húsnæðismála leggja áherslu á aðgerðir sem stuðli að uppbyggingu húsnæðis og heilbrigðum húsnæðismarkaði þar sem ungt fólk og tekjulágir eigi möguleika á að kaupa eigið húsnæði. Sagði hann frá þeim sjö aðgerðum sem hann kynnti í síðustu viku sem miða að því að auka húsnæðisöryggi og bæta réttarstöðu á leigumarkaði og sagði ríkisstjórnina einnig setja heimili fólks í forgang með aðgerðum sem sérstaklega séu hugsaðar fyrir efnaminni fjölskyldur. Lagt hafi verið fram frumvarp um hækkun stofnframlaga ríkisins til að fjármagna almenna íbúðakerfið sem hugsað sé fyrir tekju- og eignaminni leigjendur. Ragnar sagði það enda hafa sýnt sig að almenna íbúðakerfið væri eitt besta verkfærið til að auka húsnæðisöryggi leigjenda þar sem leiguverð væri allt að 40% lægra en á almennum leigumarkaði. Þá sagði hann frá því að stjórnvöld ættu í samtali við sveitarfélögin um uppbyggingarsamninga á ríkislóðum og ríkislandi sem og um umbreytingarverkefni á ríkiseignum yfir í hagkvæmt íbúðarhúsnæði. Að síðustu tilkynnti ráðherra að verið væri að vinna landsátak gegn heimilisleysi en útskýrði ekki frekar í hverju það átak nákvæmlega felst. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Færri en fjórir skoða hverja eign fyrstu vikuna Beint: Húsnæðisdagurinn 2026 Ársvöxtur félagsins 15-25% síðan 2007 Leigubremsa til að lækka verðbólguna Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt fyrir okkur Fyrsta konan á aðalfundi slökkviliðsstjóra Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Reyndi að taka á móti 9 kg af maríjúana Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úkraína dælir rússneskri olíu á nýjan leik Borgin fór á mis við nokkra milljarða Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Náttúruvá í Norðlingaholti Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Nýjast á mbl.is » Ekkert nýtt fyrir okkur Fyrsta konan á aðalfundi slökkviliðsstjóra Vill skoða mótvægisaðgerðir í samvinnu við ríkið Hækkandi greiðslur fara beint í leiguverð Reyndi að taka á móti 9 kg af maríjúana Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Á ekki að halda vöku fyrir fólki“ Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Veigamikið framsal ríkisvalds Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Leita ferðamanns í Þjórsárdal Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Leit hafin að nýju að ferðamanninum Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Verkefnið reyndist ríkislögreglustjóra ofviða Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Náttúruvá í Norðlingaholti Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set