Innlent | mbl | 14.4.2026 | 14:26 Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Birta Margrét Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán » Fleiri tengdar fréttir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt umfangsmiklar aðgerðir sem miða að því að auka húsnæðisöryggi og bæta réttarstöðu á leigumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en aðgerðirnar sem að Ragnar leggur til eru sjö talsins og eru þær eftirfarandi: Stöðugt leiguverð: Mánaðarleg vísitölutenging húsaleigu verður óheimil og aðeins verður heimilt að hækka leigufjárhæð einu sinni á 12 mánaða fresti samkvæmt húsaleigulögum. Markmiðið er að stuðla að stöðugleika og auknum fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða. Tryggingafé endurskoðað: Fyrirkomulag húsaleigutrygginga samkvæmt húsaleigulögum verður tekið til endurskoðunar. Ágreiningur um endurgreiðslu tryggingafjár er algengasta ágreiningsefnið hjá kærunefnd húsamála og vísbendingar eru um að ekki sé nægilega vel farið eftir gildandi ákvæðum. Skoðað verður hvort bæta þurfi lagaumhverfið enn frekar eða stuðla með öðrum hætti að því að farið sé eftir lögunum. Skjót og bindandi niðurstaða: Kærunefnd húsamála verður efld með það að markmiði að stytta málsmeðferðartíma og tryggja skilvirka úrlausn ágreiningsmála, fólki að kostnaðarlausu. Nefndin gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja að aðilar geti leitað réttar síns án þess að þurfa að fara með mál fyrir dómstóla. Meðal annars er heimilt að skjóta ágreiningi um sanngirni leigufjárhæðar til nefndarinnar og kveður hún upp bindandi og aðfararhæfa úrskurði. Ákvörðun leigufjárhæðar fær flýtimeðferð hjá nefndinni. Einnig er hægt að leita til hennar með öll ágreiningsefni um réttindi og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Gjaldfrjáls þjónusta elfd: Stuðningur við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna verður stóraukinn til að efla ókeypis lögfræðiráðgjöf og upplýsingar til leigjenda og leigusala um réttindi þeirra og skyldur. Mikil aðsókn hefur verið í ráðgjöf Leigjendaaðstoðarinnar. Réttindum haldið á lofti: Ráðist verður í kynningarátak um réttindi og skyldur leigjenda og leigusala, meðal annars um svonefnda leigubremsu (takmarkanir á heimildum leigusala til að hækka leigu á samningstíma) og heimildir til að bera leigufjárhæð undir kærunefnd húsamála. Er það gert þar sem vísbendingar eru um að leigjendur og leigusalar séu ekki meðvitaðir um rétt sinn og þær réttarbætur sem lagabreytingar undanfarinna ára hafa falið í sér. Góðar starfsvenjur á leigumarkaði: Unnin verður handbók um góðar starfsvenjur leigusala. Um verður að ræða samstarfsverkefni stjórnvalda, leigufélaga og annarra hagaðila á leigumarkaði, svo sem Leigjendsamtakanna. Markmiðið er að auðvelda bæði leigufélögum og einstaklingum sem leigja út húsnæði að haga starfsemi sinni í samræmi við húsaleigulög. Rýnt í húsnæðisbætur: Húsnæðisbótakerfið verður tekið til endurskoðunar með það að markmiði að stuðningurinn nýtist betur tekju- og eignaminni hópum á húsnæðismarkaði. Rýnt verður hvernig stuðningurinn nýtist í gildandi kerfi og tillögur til úrbóta lagðar fram. Frétt af mbl.is Styrkir samtökin um 25 milljónir Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Opið lengur í sundi um helgar í sumar Snorri Steinn gerði sex ára samning Óvissa með lykilmann Arsenal Funda um Hormússund á föstudag Stelpurnar unnu og stuðningsmenn fengu „Besta bitann af þorskinum“ Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún staðið sig best en Inga verst „Vandamálin hverfa ekki bara“ Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Búa sig undir tvær myrkar mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Lögregla setur einstefnu á valda vegi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Nýjast á mbl.is » Opið lengur í sundi um helgar í sumar Snorri Steinn gerði sex ára samning Óvissa með lykilmann Arsenal Funda um Hormússund á föstudag Stelpurnar unnu og stuðningsmenn fengu „Besta bitann af þorskinum“ Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Kristrún staðið sig best en Inga verst Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Lögregla setur einstefnu á valda vegi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins