Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur kynnt aðgerðir sem ætlað er að styrkja stöðu leigjenda og bæta réttarstöðu þeirra á leigumarkaði. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að banna mánaðarlega vísitölutengingu húsaleigu. Í tilkynningu sem félags- og húsnæðismálaráðuneytið sendi frá sér í dag segir að aðgerðirnar miði að því að bæta aðgengi að ráðgjöf og að gera leigumarkaðinn sanngjarnari og fyrirsjáanlegri. Hækkun leiguverðs heimiluð einu sinni á 12 mánaða fresti Fram kemur í tilkynningunni að vinna við frumvarp sem stuðli að stöðugu leiguverði og auknum fyrirsjáanleika milli mánaða sé hafin í ráðuneytinu. Í frumvarpinu verður lagt til að mánaðarleg vísitölutenging verði gerð óheimil. Þannig verði aðeins hægt að hækka leigufjárhæð einu sinni á tólf mánaða fresti samkvæmt húsaleigulögum. Þá verður fyrirkomulag húsaleigutrygginga samkvæmt húsaleigulögum tekið til endurskoðunar, en fyrirkomulagið er algengasta ágreiningsefnið hjá kærunefnd húsamála. Enn fremur verður skoðað hvort bæta þurfi lagaumhverfið eða að stuðla að því með öðrum hætti að farið sé eftir lögum. Húsnæðisbætur nýtist tekju-og eignaminni hópum betur Til þess að tryggja leigjendum öflug réttarúrræði verður kærunefnd húsamála efld með það að markmiði að stytta málsmeðferðartíma og tryggja skilvirkni í úrlausn ágreiningsmála, fólki að kostnaðarlausu. Þá verður stuðningur við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna stóraukinn til þess að efla ókeypis lögfræðiráðgjöf og upplýsingar til leigjenda og leigusala um réttindi þeirra og skyldur. Í tilkynningunni segir einnig að ráðist verði í kynningarátak til að auka þekkingu á réttindum og skyldum á leigumarkaði. Sömuleiðis verði unnið að handbók um góðar starfsvenjur leigusala. Loks stendur til að taka húsnæðisbótakerfið til endurskoðunar með það að markmiði að stuðningurinn nýtist tekju- og eignaminni hópum á húsnæðismarkaði betur. Þá verður starfshópi falið að rýna í húsnæðisbótakerfið og greina tækifæri til úrbóta.

Share this article