Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Umferðaslys á Reykjanesbraut í norðurátt Ragnar Jón Hrólfsson Umferðaslys átti sér stað á Reykjanesbraut í norðurátt rétt eftir klukkan þrjú í dag. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er talið að einn sé slasaður en ekki alvarlega. Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Tekist á um leið Holtavörðuheiðarlínu 3 Fulltrúar Landsnets sátu fyrir svörum á opnum fundi í gær. Hagsmunasamtök landeiganda hafa gagnrýnt Holtavörðuheiðarlínu 3 harðlega. Fyrir 28 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Frá titlum til þriðju deildar: Hvað gerðist? Knattspyrnulið Leicester City hefur lifað tímana tvenna á undanförnum áratug. Liðið varð Englandsmeistari árið 2016 en mun nú leika í þriðju deild á næsta tímabili. Hvað hefur gengið á hjá liðinu undanfarin tíu ár? Fyrir 42 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Treystir því að hún sé að vísa okkur veginn Sýningarstjórar segja sýningu Ástu Fanneyjar á Feneyjartvíæringnum minna áhorfandann á að þeir séu með ljósið í vasanum og geti haft áhrif á líf sitt og annarra. Ásta treysti áhorfandanum 100% og hann treysti henni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Orrustuþotur rákust á vegna myndatöku flugmanna Ástæðan fyrir árekstri tveggja suðurkóreskra orrustuþota árið 2021 var sú að flugmennirnir voru að taka myndir og myndskeið á símann. Annar flugmannanna vildi eiga minningu um sitt síðasta flug. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Barst ábending um að ungbarn hefði fengið lóð í kviðinn á líkamsræktarstöð Umboðsmaður barna sendi erindi til heilbrigðiseftirlita allra sveitarfélaga vegna ábendingar um að ungabarn hefði fengið lóð í kviðinn í líkamsræktarstöð. Hún segir mikilvægt að ung börn séu ekki látin liggja innan um þung tæki eða lóð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Tveir nýir skrifstofustjórar í mennta- og barnamálaráðuneytinu Grétar Þór Sigurðsson Linda Heiðarsdóttir og Ragnhildur Bolladóttir eru nýir skrifstofustjórar í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Stjórnarráðið Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Lindu Heiðarsdóttur og Ragnhildi Bolladóttur í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Linda er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu skóla- og íþróttamála. Hún hefur verið aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla frá 2015. Ragnhildur er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Hún hefur verið teymisstjóri í ráðuneytinu frá 2023. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands og sem sérfræðingur hjá Menntamálastofnun. Skipað er í embættin til fimm ára. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á stofnunum hefst eftir helgi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur birt upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á heilbrigðis- og öldrunarstofnunum, stofnunum fyrir fatlað fólk og í fangelsinu á Hólmsheiði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Lufthansa ekki að fækka ferðum til Íslands Hugrún Hannesdóttir Diego Ákvörðun þýska flugfélagsins Lufthansa hefur að öllum líkindum ekki áhrif á flugferðir þess til Íslands. Þetta segir upplýsingafulltrúi Isavia. Lufthansa tilkynnti í gær að 20.000 flugferðum yrði aflýst fram í október vegna hækkandi verðs á flugvélaeldsneyti. Flugfélagið gerir ráð fyrir að með þessu sparist um 40.000 tonn af flugvélaeldsneyti. Ákvörðunin hefur einna helst áhrif á styttri ferðir. EPA / Christopher Neundorf Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Hvalveiðiráðgjöf lækkuð um fimmtung Hvalur hefur ekki verið veiddur við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Hafrannsóknastofnun ráðleggur að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar á komandi tímabili. Atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um hvalveiðibann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hampiðjan reisir verksmiðjur á Indlandi Byggingu tveggja 28 þúsund fermetra verksmiðjuhúsa Hampiðjunnar á Indlandi á að ljúka síðar í sumar. Þar munu um 750 manns koma til með að vinna þegar starfsemin verður komin á fullt skrið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Landhelgisgæslan sótti slasaðan sjómann 185 sjómílur suðvestur af landinu Landhelgisgæslan sótti í morgun slasaðan sjómann af spænsku fiskiskipi. Skipið var utan íslenskrar lögsögu þegar kallið barst síðdegis í gær. Því var beint í átt til Íslands og önnuðust þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar björgunaraðgerðir. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Olía rennur um Druzhba-leiðsluna og lán ESB til Úkraínu samþykkt Björn Malmquist Móttökustöð fyrir olíu í Ungverjalandi, þar sem olía um Druzhba leiðsluna kemur á áfangastað. MTI / EPA Olía frá Rússlandi er farin að renna um Druzhba-olíuleiðsluna sem liggur um Úkraínu til Ungverjalands og Slóvakíu, sögðu embættismenn í þessum ríkjum í morgun. Olíuflutningar um leiðsluna stöðvuðust snemma á þessu ári, og stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að ástæðan hafi verið loftárásir Rússa á dælustöð sem tengist leiðslunni. Um svipað leyti í morgun varð ljóst að andstaða Ungverja og Slóvakíu við afgreiðslu á 90 milljarða evra láni Evrópusambandsins til Úkraínu væri ekki lengur fyrir hendi. Það kom í ljós á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna í Brussel í morgun, þar sem tillagan um lánið var samþykkt, sem og refsiaðgerðir ESB gegn Rússum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Maður handtekinn vegna hótana í Borlänge Hallgrímur Indriðason Hættan á skotárás í skóla í Borlänge er liðin hjá. Lögreglan tilkynnti að búið væri að handtaka mann vegna hótana um ofbeldi, sem varð til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Danil Fält upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins segir að skólarnir verði opnir eins og venjulega á morgun. Enn hefur ekki verið gefið upp hvers eðlileg hótunin er en Aftonbladet sagði frá því að hún hefði falið í sér skotárás á skóla. Lögreglubíll fyrir utan framhaldsskóla í Borlänge. Skjámynd / SVT Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Boða starfsfólk á fund um hagræðingaraðgerðir Stjórnendur innan Landspítalans segja aðhaldskröfu stjórnvalda kalla á mikið endurskipulag til að þjónusta skerðist ekki. Starfsmenn sjúkrahússins hafa verið boðaðir á fund þar sem ákvarðanir um hagræðingu verða kynntar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni Fólk í úthverfum er andvígara þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu en fólk í miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur. Fólk sem gengur, hjólar og tekur strætó er hlynntara þéttingu en það sem ferðast á bíl. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Uppbygging varnargarða á Reykjanesskaga var ríkislögreglustjóra ofviða Ríkisendurskoðun gagnrýnir óskýra verkaskiptingu, skort á eftirliti með kostnaði og hvernig staðið var að ákvarðanatöku við uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga í stjórnsýsluúttekt. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða Fólk sem er komið yfir sextugt telur efnahagsstöðuna á réttu róli en ekki þau sem yngri eru. Fólk með yfir tvær milljónir í heimilistekjur á mánuði lítur ástandið bjartari augum en aðrir tekjuhópar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi Íranar skutu á gámaskip undan ströndum Óman og skemmdu það. Breskt öryggisfyrirtæki segir íranska byltingarvörðinn hafa gert árásina eftir að skipið fékk leyfi til að fara í gegnum Hormússund. Tvö skip til viðbótar hafa orðið fyrir árás. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Leita erlends ferðamanns í grennd við Háafoss Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu við leit að erlendum ferðamanni í gær eftir að hann skilaði sér ekki á gististað. Leit verður fram haldið í dag. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Fella niður skólahald eftir hótun um skotárás Hótun um skotárás í skóla í bænum Borlänge í Svíþjóð var gerð í nótt. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu sem segir of snemmt að segja til um hvort alvara búi að baki hótuninni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Þurfa að meta stöðu innviða og endurskoða viðbragðsáætlanir í Hafnarfirði Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fagnar því að áhættumat Veðurstofunnar á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu liggi fyrir. Skoða þurfi uppbyggingaráform og tryggja öryggi íbúa og innviða út frá matinu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Katar Afganskir flóttamenn hugsanlega fluttir til Kongó eða heimalandsins Bandaríkjastjórn hyggst leggja niður búðir í Katar sem hýsa yfir 1.100 Afgana sem bíða þess að fá landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Fólkið verður hugsanlega sent til Kongó eða Afganistan. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Fjöldi íbúða til sölu í sögulegum hæðum Íbúðum á sölu hefur fjölgað um rúmlega 1.800 undanfarið ár. Níu af hverjum tíu fasteignasölum telja virkni litla á fasteignamarkaði miðað við árstíma og meirihluti þeirra telur verð þokast niður á við. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Stelpur úr MS bjuggu til heilsudrykk út frá þörfum Íslendinga Vörumessa ungra frumkvöðla var haldin í Smáralind um helgina þar sem 620 nemendur frá átján framhaldsskólum kynntu og seldu nýsköpun sína. Þar á meðal voru fjórar stelpur úr Menntaskólanum við Sund með heilsudrykkinn sinn Blæ. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hægir vindar allsráðandi næstu daga Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig í dag en nálægt frostmarki í nótt. Víða verður hæg vestlæg eða breytileg átt en suðvestan 8 til 15 metrar á sekúndu norðvestantil. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Kórea Hakkarahópur grunaður um að hafa framið stærsta rafmyntaþjófnað ársins Norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að