Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Breiðholtslaug lokað vegna viðhalds Andri Yrkill Valsson Breiðholtslaug verður lokuð vegna viðhalds dagana 3.-10. maí, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Hún verður opnuð aftur mánudaginn 11. maí. Ljósmynd / Reykjavíkurborg Fyrir 13 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Viðsnúningur Eyjakvenna skilaði sigri gegn Víkingum Annarri umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta lauk í dag. Nýliðar ÍBV tóku á móti Víkingum á vindbörðum Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum og enduðu á að vinna 3-2 sigur eftir að hafa lent 2-0 undir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Stefnt að því að hefja dýpkun í Landeyjahöfn í dag Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ákvörðun um að ferjan Baldur yrði fengin til að leysa Herjólf af hafa verið tekna með stuttum fyrirvara. Aðstæður séu óvenjulegar en vonir standi til að opna Landeyjahöfn fljótlega. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Ríkisstjórnarmeirihlutinn fallinn og VG nær inn manni Ríkisstjórnarmeirihlutinn er fallinn samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Vinstri græn mælast inni á þingi í fyrsta sinn í rúm tvö ár. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Samráðsleysi einkenni hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar Formaður BSRB segir það tilfinningu sína að verkalýðshreyfingin sé í meiri vörn en oft áður. Formaður BHM segir að hagræðingar aðgerðir ríkisstjórnarinnar Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Órói meðal þingmanna Repúblíkana vegna 60 daga frests um lok Íranstríðsins Í dag rennur út frestur fyrir Donald Trump til að fá samþykki Bandaríkjaþings fyrir stríðinu í Íran. Repúblíkanar telja sig ekki þurfa að standa við það þar sem vopnahléð hafi markað endalok stríðsins. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leikhúsgagnrýni Ég, Jóhanna: Brýnt erindi en gæði sýningarinnar hefðu getað orðið margfalt meiri Leikhópurinn Endalaus vitleysa setur upp sögu Jóhönnu af Örk í Tjarnarbíói og fjallar um málefni sem Trausta Ólafssyni gagnrýnanda þykir brýnt að tekist sé á við í listum. Sýningin sé áhugaverð en ýmislegt vantaði upp á. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Um 200 handteknir í verkalýðsmótmælum Um 200 manns voru handteknir í Istanbúl í Tyrklandi í mótmælagöngu í tilefni baráttudags verkalýðsins. Táragasi var beitt gegn hóp sem ætlaði að komast inn á eitt af torgum borgarinnar sem hafði verið girt af. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar „Alvarlegt mál að við erum komin aftur á þann stað að vera með verðlagseftirlit“ Eldsneytisverð hefur lækkað um tæpar þrjátíu krónur eftir lækkun virðisaukaskatts sem tók gildi í dag. Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins telur að markmiðum stjórnvalda verði náð með þessari aðgerð, en gagnrýnir eftirlit með olíufélögunum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Gamla skipið kvaddi og hið nýja boðið velkomið Ljósafell SU 70, nýtt skip Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, kom til heimahafnar í fyrsta sinn í vikunni. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Tekist á um næstu fjárlög Evrópusambandsins Evrópuþingið vill að næstu sjö ára fjárlög Evrópusambandsins verði upp á meira en tvö þúsund milljarða evra; talsvert meira en framkvæmdastjórnin hefur lagt til. Hópur aðildarríkja er alfarið á móti þessari hækkun og harður slagur er í uppsiglingu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjartur en kaldur verkalýðsdagur Hvassviðri og kuldi einkenna verðið framan af degi. Í kvöld hægir á vindi og frystir. Hálka og hálkublettir eru á vegum víða um land. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Lækkun eldsneytis komin fram Eldsneytisverð lækkaði almennt um mánaðamót þegar lækkun virðisaukaskatts tók gildi. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Var enginn óknyttastrákur en lá á að komast út í lífið Haukur Holm fyrrverandi fréttamaður segist hafa verið dálítið villtur en þó alltaf góður strákur. Hann hafði rómantískar hugmyndir um að verða skáld en sá fyrir sér að erfitt yrði að lifa á þeim skrifum og fór í blaðamennsku sem hann sinnti í 40 ár. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Fjölmenni ætlaði að ryðjast inn á sjúkrahús þar sem grunaður morðingi naut læknisaðstoðar Átök brutust út þegar fjöldi fólks safnaðist saman við sjúkrahús í ástralska bænum Alice Springs þar sem læknar gerðu að sárum manns sem grunaður er um að hafa myrt fimm ára stúlku af ættum frumbyggja. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Telja að konan hafi verið gerð út af stjúpföður Ung kona var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli vegna farangurs sem talinn var óvenjulegur. Í ljós kom að konan var hingað komin vegna vændis. Lögreglan taldi að stjúpfaðir hennar væri ábyrgur fyrir því. Vændismál koma reglulega upp á flugvellinum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelsk stjórnvöld undir þungu ámæli fyrir að stöðva Sumud-flotann Ísraelsk yfirvöld eru sökuð um sjórán og brot á alþjóðalögum með því að stöðva flota með hjálpargögn til Gaza á alþjóðlegu hafsvæði nærri Grikklandi. Um 200 aðgerðarsinnar voru teknir höndum og verða fluttir til Grikklands að sögn Ísraela. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Öfurölvi maður handtekinn við að reyna að opna dyr bíla á ferð Markús Þ. Þórhallsson Lögreglumenn handtóku í gærkvöld eða nótt öfurölvi mann sem reyndi að opna dyr bíla á ferð. Lögreglukonur á næturvakt í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Hann var vistaður í fangaklefa uns hann getur verið meðal almennings, eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn jöfnuðu ágreining á staðnum eftir að farþegi leigubifreiðar í miðborginni neitaði að greiða fyrir farið og olli skemmdum á bílnum. Innbrot í verslun í Vesturborginni er til rannsóknar og þar var einnig tilkynnt um símastuld á sjúkrastofnun. Eitthvað var um ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu og einn ökumaður hlaut sekt fyrir að aka á 142 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er áttatíu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Brasilía Báðar deildir þingsins samþykkja að milda refsingu Bolsonaros Brasilíska þingið hefur tvisvar í vikunni tekið fram fyrir hendurnar á forsetanum, fyrst með því að hafna frambjóðanda hans til Hæstaréttar og svo fyrir að milda refsingu forvera hans sem var dæmdur fyrir valdaránstilraun. 1. maí 2026 kl. 5:15ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tveir karlmenn teknir af lífi í gær — annar beið 50 ár á dauðadeild Tveir karlmenn voru líflátnir í Bandaríkjunum í gær. Annar hafði áratugum saman beðið aftöku og báðir lýstu yfir sakleysi. Tugur fanga hefur verið líflátinn það sem af er ári. Nærri helmingur ríkja hefur afnumið dauðarefsingu. 1. maí 2026 kl. 4:40ERLENDAR FRÉTTIR Orkumál Bandaríkin setja um 92 milljónir olíutunna af varabirgðum á markað Markús Þ. Þórhallsson Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að um 92 milljónir olíutunna úr varabirgðum verði settar á markað til að lægja öldurnar á markaðnum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Eldsneytisverð hefur hækkað verulega frá því Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran 28. febrúar. EPA / GUILLAUME HORCAJUELO Bandaríkin samþykktu fyrr á árinu að lána 172 milljónir tunna úr varabirgðunum sem hluta samkomulags við Alþjóðaorkustofnunina þar sem um þrjátíu ríki losuðu samtals um 400 milljónir olíutunna. Bandaríkin hafa þegar boðið um 126 tunnur en olíufyrirtæki hafa aðeins viljað þiggja tvo þriðju hluta þeirra eða um 80 milljónir. 1. maí 2026 kl. 4:00ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur leiðtoga landsins til fundar við forsætisráðherra Ísraels Bandaríska sendiráðið í Líbanon hvetur til þess að forseti landsins hitti leiðtoga Ísraels til friðarviðræðna. Fulltingi Bandaríkjanna tryggi Líbönum öryggi og fullveldi til framtíðar. Vopnahlé hefur ekki áhrif á framgöngu Ísraelshers gegn Hezbollah. 1. maí 2026 kl. 3:19ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin segja stríðsátökum við Íran lokið Háttsettur en ónafngreindur embættismaður innan bandaríska stjórnkerfisins segir stjórnvöld líta svo á að átökum við Íran sé lokið. Þannig komist stjórnin hjá því að æskja leyfis þingsins til áframhaldandi stríðsreksturs. 1. maí 2026 kl. 2:38INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vestmannaeyjaferjurnar sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn Ferjurnar Herjólfur og Baldur sigla til Þorlákshafnar um helgina en ekki í Landeyjahöfn. Dýpið þar nægir ferjunum ekki. Báðar leggja upp frá Vestmannaeyjum um klukkan sjö í dag og frá Þorlákshöfn klukkan 11 og 11:15, í fyrri ferðum dagsins. 1. maí 2026 kl. 1:25INNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tveir unglingar drepnir í drónaárás í Belgorod Markús Þ. Þórhallsson Tveir unglingar á mótorhjóli voru drepnir í drónaárás Úkraínuhers á rússneska héraðið Belgorod. Dmitry Medvedev, varaformaður öryggisráðs Rússlands, fylgist með heræfingu nærri St. Pétursborg 30. apríl. EPA / EKATERINA SHTUKINA/ SPUTNIK / GOVERNMENT PRESS SERVICE / POOL Héraðsstjórinn segir í færslu á Telegram að vísvitandi hafi verið ráðist á ungu mennina sem létust umsvifalaust af sárum sínum. Rússar hafa frá upphafi innrásarstríðsins gert nánast linnulausar árásir á innviði Úkraínu. Úkraínsk stjórnvöld segja hefndaraðgerðum fyrst og fremst beint að orkuinnviðum Rússlands en þarlend stjórnvöld hafa ítrekað sakað Úkraínuher um að gera mannskæðar árásir á almenna borgara. Friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjanna hafa frestast vegna þátttöku þeirra í stríðinu gegn Íran. 1. maí 2026 kl. 0:34INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Jón Gnarr kveðst ekki hafa fengið greitt fyrir grín í Vikunni — hvorki fyrr né síðar Jón Gnarr segist ekki hafa fengið greitt fyrir að koma fram í Vikunni á RÚV ásamt Sigurjóni Kjartanssyni þar sem þeir gerðu grín að andstæðingum ESB-aðildar. Ekkert sé hæft í fréttum mbl.is þess efnis, þar sem vitnað er í svör útvarpsstjóra. 1. maí 2026 kl. 0:11INNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Hlé gert á þingfundum fram yfir sveitarstjórnarkosningar Markús Þ. Þórhallsson Í