Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lítilli flugvél hlekktist á í lendingu á Norðfirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lít­illi flug­vél hlekkt­ist á í lend­ingu á Norð­firði Þorgils Jónsson Lítilli eins hreyfils tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu og hvolfdi á Norðfjarðarflugvelli um klukkan hálf fjögur í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að flugmaðurinn hafi verið einn í vélinni og mun hafa sloppið án meiðsla. Orsakir óhappsins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Frá Norðfjarðarflugvelli. Myndin er úr safni. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Svart­fjalla­land færist nær Evr­ópu­sam­band­inu Ríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að byrja samsetningu á inngöngusáttmála Svartfjallalands í Evrópusambandið. Stjórnvöld í landinu stefna að inngöngu eftir tvö ár. Fyrir 34 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Stærsta orku­kreppa sög­unn­ar“ Heimurinn stendur frammi fyrir stærstu orkukreppu sögunnar vegna stríðsins í Íran, að mati framkvæmdastjóri Alþjóðaorkumálastofnarinnar. Meiri olía og gas hafi tapast en í fyrri orkukreppum. Fyrir 54 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Liam Ros­en­i­or rekinn frá Ch­el­s­ea – samdi til sex og hálfs árs fyrir þremur mán­uð­um Einar Örn Jónsson Enska fótboltafélagið Chelsea rak í dag þjálfara karlaliðs félagsins, Liam Rosenior. Chelsea hefur tapað fimm leikjum í röð, nú síðast gegn Brighton í gærkvöldi, 3-0. Rosenior entist ekki lengi í starfi. Hann tók við í janúar eftir að Enzo Maresca var rekinn og entist í 104 daga. Rosenior stýrði áður Strasbourg, sem er í eigu þeirra sem eiga Chelsea, og gerði sex og hálfs árs samning. Það kom ekki í veg fyrir að hann fengi að taka pokann sinn. Chelsea leitar því að þriðja þjálfaranum á þessari leiktíð og hefur Andoni Iraola, sem nú stýrir Bournemouth, verið nefndur. Hann tilkynnti í síðustu viku að hann myndi ekki vera áfram í Bournemouth. Liam Rosenior entist 3 mánuði af 77 mánaða samningi við Chelsea. EPA / ANDY RAIN Fyrir 55 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Hætta á gróð­ur­eld­um næstu daga Ragnhildur Helgadóttir Slökkviliðið varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga eftir langvarandi þurrka. Gróður er ekki farinn að taka við sér og mikið af sinu er til staðar, sem getur skapað hættu á gróðureldi. „Við hvetjum fólk að sýna sérstaka aðgát við meðferð elds utandyra, forðast opinn eld og ganga úr skugga um að ekki kvikni í gróðri,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Verði fólk vart við gróðureld er það beðið um að hafa strax samband við neyðarlínuna í síma 112. Veðurstofan spáir rigningu síðar um helgina sem gæti dregið úr hættunni. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ís­lenskt trygg­inga­fé­lag varar við lækna­stofu á Kanarí Fjöldi svikamála hefur komið á borð tryggingafélagsins Varðar sem hafa tengst læknastofu á Gran Canaria. Vörður varar fólk við að sækja þangað þjónustu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Beint frá íbúa­fundi í Grinda­vík Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Gagn­rýna eft­ir­lits­leysi með Gauks­stöð­um: „Þannig að ég er bara labb­andi launatékki“ Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum segist ítrekað hafa reynt að benda barnaverndaryfirvöldum á að ekki væri allt með felldu þar. Kona sem bjó á heimilinu hringdi sjálf í barnavernd sem barn og faðir hennar sömuleiðis. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Ekkert standi í vegi fyrir hval­veið­um í sumar Núverandi hvalveiðilöggjöf er barn síns tíma, segir atvinnuvegaráðherra sem hefur boðað frumvarp um hvalveiðibann. Ekkert stendur í vegi fyrir hvalveiði í sumar í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson veitti leyfi til fimm ára 2024. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Sá hand­tekni í Sví­þjóð á tán­ings­aldri Hallgrímur Indriðason Framhaldsskóli í Borlänge. Tveir lögreglubílar stóðu vaktina þar í morgun. SVT / Jennifer Howgate Hinn handtekni í tengslum við hótun um ofbeldi í skóla í Borlänge í Svíþjóð er drengur á táningsaldri. Hótanirnar urðu til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Sænskir fjölmiðlar segja að hótunin hafi falið í sér skotárás en lögreglan hefur ekki tjáð sig um það. Lögreglan hafði lýst eftir drengnum á mánudaginn. Hún er með hótanirnar til rannsóknar og er verið að yfirheyra drenginn vegna þeirra. Hættan vegna hótananna er liðin hjá og skólarnir munu starfa eðlilega á morgun. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­un­ar ákveð­ið reið­ar­slag Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir ljóst að skýra þurfi hver beri ábyrgð á viðbragði við náttúruhamförum. Ríkisendurskoðun telur uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga hafa verið ríkislögreglustjóra ofviða. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Blaða­manna­fé­lag­ið for­dæm­ir harðn­andi orð­ræðu í garð blaða­manna Árásir, dylgjur og alvarlegar ásakanir í garð blaðamanna frá kjörnum fulltrúum og áhrifafólki í samfélaginu grafa undan trúverðugleika stéttarinnar. Harðnandi orðræða var fordæmd á aðalfundi BÍ í gær. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Kröfur til með­ferð­ar­heim­ila óljós­ar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið frumkvæðisathugun á þjónustu meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu. Í skýrslunni segir að framboð á þjónustu meðferðarheimila hafi verið verulega skert frá 2024. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Mengað vatns­ból vegna hraun­rennsl­is meira mál en biluð lögn Nokkuð af lykilinnviðum er á viðkvæmum slóðum í nýju hraunavármati Veðurstofu Íslands. Forstöðumaður hjá Veitum segir að einkum þurfi að huga að verndun vatnsbóla. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Við erum að byggja of dýrar íbúðir“ Fjöldi íbúða á sölu er í hæstu hæðum en það sem er í boði hentar ekki þeim sem vilja kaupa. Húsnæðismálaráðherra segir vandann margþættan en augljóst sé að ekki sé verið að byggja inn í þá eftirspurn sem er þegar á markaði. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Ný mynd um Mich­a­el Jacks­on jörðuð af gagn­rý­n­end­um Bíómyndin Michael, sem byggð er á ævi tónlistarmannsins Michael Jackson, hefur víðast hvar fengið slæma dóma eftir að hún var forsýnd fyrir tveimur dögum. Mörgum þykir hún hlífa honum full mikið. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Lyftingar Þrjú Ís­lands­met hjá Guð­nýju á EM Guðný Björk Stefánsdóttir átti virkilega góðan dag á EM í óllympískum lyftingum í dag því hún setti þrjú ný Íslandsmet. Guðný keppti í A-hópi í -69 kílóa flokki. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Samdi lagið „Fjólan“ í róðri og risp­aði á árina sína Til eru margir söngvar um fjólur, innlendir og erlendir. Nokkrir þeirra verða fluttir í þættinum „Heiðbláa fjólan mín fríða“ á sumardaginn fyrsta klukkan 15. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­an sam­ræm­ist al­þjóð­leg­um við­mið­um Það er mat Feneyjanefndarinnar að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samræmist alþjóðlegum viðmiðum, svo lengi sem kjósendur fái nægar upplýsingar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Með­vit­uð ákvörð­un að moka minna Kostnaður við vetrarþjónustu um Víkurskarð hefur dregist verulega saman á undanförnum árum þótt bílaumferð hafi aukist talsvert. Tekin var meðvituð ákvörðun um að moka minna. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Birna, Ævar Þór og Jón hljóta Barna­bóka­verð­laun Reykja­vík­ur­borg­ar Birna Daníelsdóttir, Ævar Þór Benediktsson og Jón St. Kristjánsson hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 fyrir bækurnar Ég bý í risalandi, Skólastjórinn og Undrarútan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Um­ferð­ar­slys á Hafn­ar­fjarð­ar­vegi í norð­ur­átt Ragnar Jón Hrólfsson Einn er slasaður en þó ekki alvarlega eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi við Fossvog í norðurátt rétt eftir klukkan þrjú í dag. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang, að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild, segir að tvö ökutæki hafi lent í slysinu. „Það eru miklar umferðartafir, frá Hafnarfirði inn í Reykjavík vegna þessa,“ segir hann. Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Árna Friðleifsson. Samkvæmt fyrstu upplýsingum varð slysið á Reykjanesbraut en það hefur verið leiðrétt. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Tekist á um leið Holta­vörðu­heið­ar­línu 3 Fulltrúar Landsnets sátu fyrir svörum á opnum fundi í gær. Hagsmunasamtök landeiganda hafa gagnrýnt Holtavörðuheiðarlínu 3 harðlega. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Frá titlum til þriðju deild­ar: Hvað gerð­ist? Knattspyrnulið Leicester City hefur lifað tímana tvenna á undanförnum áratug. Liðið varð Englandsmeistari árið 2016 en mun nú leika í þriðju deild á næsta tímabili. Hvað hefur gengið á hjá liðinu undanfarin tíu ár? Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Treyst­ir því að hún sé að vísa okkur veginn Sýningarstjórar segja sýningu Ástu Fanneyjar á Feneyjartvíæringnum minna áhorfandann á að þeir séu með ljósið í vasanum og geti haft áhrif á líf sitt og annarra. Ásta treysti áhorfandanum 100% og hann treysti henni. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Orr­ustu­þot­ur rákust á vegna mynda­töku flug­manna Ástæðan fyrir árekstri tveggja suðurkóreskra orrustuþota árið 2021 var sú að flugmennirnir voru að taka myndir og myndskeið á símann. Annar flugmannanna vildi eiga minningu um sitt síðasta flug. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Barst ábend­ing um að ung­barn hefði fengið lóð í kvið­inn á lík­ams­rækt­ar­stöð Umboðsmaður barna sendi erindi til heilbrigðiseftirlits allra sveitarfélaga vegna ábendingar um að ungbarn hefði fengið lóð í kviðinn í líkamsræktarstöð. Hún segir mikilvægt að ung börn séu ekki látin liggja innan um þung tæki eða lóð. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Tveir nýir skrif­stofu­stjór­ar í mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu Grétar Þór Sigurðsson Linda Heiðarsdót

Share this article