Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þú þarft að vera ansi skrýtinn í hausnum“

Read Full Article →

Gunnar Birgisson og Snorri Páll Guðbjörnsson ræddu brun á Vetrarólympíuleikum í fyrsta þætti Ólympíukvölds. Þeir fóru yfir hvers vegna íþróttin er svo erfið og hverju keppendur mega búast við á brautinni. „Þú þarft að vera svolítið klikkaður til þess að fara í brun?“ spurði Gunnar sérfræðinginn Snorra. „Já, þú þarft að vera ansi skrýtinn í hausnum til þess að velja að fara í þessa grein.“ Hraði : Um og upp úr 150 km hraða Lengsta stökk: 53 metrar Keppendur fara ansi hratt og eru í raun ekki á snjó, segir Snorri. „Þú hendir þér niður brekkuna á allt að 150 km hraða, niður þverhníptar brekkur. Þetta er ekkert grín að taka þátt í svona keppni. Brautin er undirbúin þannig að það er sprautað vatni í snjóinn til að búa til glæran ís í rauninni.“ - Snorri. „Svo eru þeir í rauninni ekki með neinar varnir heldur. Þeir eru bara í gallanum og eru vissulega með loftpúðavesti. En þeir eru bara á ís á 215 sentímetra löngum skíðum. Þeir ná ótrúlegum hraða, eins og byssukúlur skjóta þarna niður,“ sagði Snorri sem bætti því við að ísinn sé þannig að hann geti skorið líkamann. Því eru keppendur í sérstökum hlífðarbúnaði undir búningnum en því fyrirkomulagi var þó einungis nýverið komið á. Umræðuna um brun úr Ólympíukvöldinu má sjá hér að neðan. Gunnar Birgisson og Snorri Páll Guðbjörnsson ræddu brun á Vetrarólympíuleikum. Þeir fóru yfir hversu hratt keppendur fara og hvernig brautin sjálf er í raun ísuð. Þeir eru sammála um að brun er ekki fyrir hvern sem er. Ólympíukvöld er á RÚV virka daga mánudaga til fimmtudag þar sem keppnir dagsins verða gerðar upp. Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson stýra þáttunum sem hefjast upp úr klukkan 21 og kafa ofan í það helsta á leikunum með gestum sínum.

Share this article