Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ólympíumetin í skautahlaupi falla hvert á eftir öðru

  • What: The article discusses the ninth day of the Winter Olympics in Italy.
  • Impact: Mentions unexpected results in women's relay race and broken records in speed skating.
Read Full Article →

Sem fyrr var keppt til nokkurra verðlauna á níunda keppnisdegi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag. Meðal helstu verðlaunagreina dagsins má nefna tíðindamikla keppni í boðgöngu kvenna. Svíar hafa borið höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir í skíðagöngu kvenna hingað til. Öll þrjú gullin voru sænsk og í heildina höfðu sænskar skíðagöngukonur unnið sjö af níu mögulegum verðlaunum. Í boðgöngunni skipa fjórar hverja sveit og hver og ein gengur 7,5 kílómetra. Linn Svahn gekk fyrsta sprett Svía og kom fyrst inn á skiptisvæðið þar sem Ebba Anderson tók við. Henni voru þó eitthvað mislægðir fætur og hún datt. Ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Það hefur gengið á ýmsu á þessum níunda keppnisdegi Vetrarólympíuleikanna. Brasilía fékk sín fyrstu verðlaun frá upphafi, óvænt úrslit urðu í boðgöngu kvenna eftir óhapp Svía og ólympíumetin halda áfram að falla í skautahlaupi. Svíar voru í áttunda sæti þegar Anderson skipti en þær Frida Karlsson og Jonna Sundling söxuðu á önnur lið. Þær náðu þó aldrei norska liðinu sem vann og Svíar máttu sætta sig við silfur. Finnland varð í þriðja sæti og fékk bronsið. Noregur á toppi verðlaunatöflunnar Noregur trónir á toppi verðlaunatöflunnar eftir keppni dagsins. Noregur eru með 10 gullverðlaun og alls 20 verðlaun. Ítalía kemur næst með alls 18 verðlaun, þar af 6 gullverðlaun. Bandaríkin eru í þriðja sæti með 17 verðlaun, þar af 5 gull. Norðmenn fengu einnig gullverðlaun í 7,5 km sprettgöngu kvenna í skíðaskotfimi. Maren Kirkeeide hitti úr öllum sínum skotum og kom í mark 3,8 sekúndum á undan Oceane Michelon frá Frakklandi. Frakkar unnu einnig brons, það gerði Lou Jeanmonnot. Gull til Ástralíu í hólasvigi Í samhliða hólasvigi mættust hin ástralska Jakara Anthony og Jaelin Kauf frá Bandaríkjunum í úrslitum. Einkunnir eru gefnar út frá hraða, svigstíl og stökkum og svo fór að Anthony vann með fimm stigum. Auk silfursins fékk bandaríska liðið einnig brons því Elizabeth Lemley hafði betur gegn Perrine Laffont frá Frakklandi með minnsta mun. Enn á ný ólympíumet í skautahlaupi Ólympíumetin í skautahlaupi hafa fallið hvert á fætur öðru á þessum leikum og engin breyting var á í dag. Kanadamaðurinn Laurent Dubreuil bætti Ólympíumetið í 500 metra skautahlaupi um sex sekúndubrot en Bandaríkjamaðurinn Jordan Stolz og Hollendingurinn Jenning de Boo áttu eftir að skauta og fóru þeir báðir undir tíma Kanadamannsins. Stolz bætti met Dubreuil og tryggði sér gullverðlaunin á enn einu nýja ólympíumetinu sem hann bætti um 49 sekúndurbrot. De Boo varð 11 sekúndubrotum á eftir Stolz og náði silfurverðlaununum. Fyrstu verðlaun Suður Ameríku frá upphafi Eins og við greindum frá fyrr í dag náði Jón Erik Sigurðsson ekki að klára seinni ferð sína í stórsvigi en hann keppir næst í svigi á mánudaginn. Það bar þó til tíðinda í þeirri sömu grein Lucas Pinheiro Braathen sigraði í stórsviginu og vann þar með fyrstu verðlaun Brasilíu frá upphafi á Vetrarólympíuleikum. Þetta eru jafnframt fyrstu verðlaun sem þjóð frá Suður Ameríku hlýtur á Vetrarólympíuleikum.

Share this article