Enn eina ferðina var ólympíumet bætt í skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag. Þetta er í fjórða sinn á leikunum sem metið er í það minnsta tvíbætt en í dag voru fjórir fljótustu keppendurnir undir ólympíumetinu í 1500 metra skautahlaupi karla. Bandaríski hraðskautamaðurinn Jordan Stolz náði ekki að fullkomna þrennuna þegar hann varð að sætta sig við annað sætið. Kjeld Nuis frá Hollandi varð þriðji. Eftir erfiðan upphafshring tókst Stolz ekki að vinna upp tímamuninn og kom í mark á 1:42,75 mínútum, 77 sekúndubrotum á eftir Kínverjanum Zhongyan Ning sem vann gullið á nýju Ólympíumeti, 1:41,98. Reyndar slógu fjórir efstu skautararnir gamla ólympíumetið. Ning vann um leið sitt fyrsta Ólympíugull og tryggði Kína fyrstu skautaverðlaunin á þessum Ólympíuleikum. Stolz hafði áður unnið gull í bæði 500 og 1000 metrum og sett Ólympíumet í báðum greinum en hann stefndi á að verða fyrsti karlinn síðan Norðmaðurinn Johann Olav Koss á Ólympíuleikunum 1994 í Lillehammer til að vinna þrjú einstaklingsgull á sömu leikum í skautahlaupi. Fjórir fljótustu menn voru undir ólympíumetinu í 1500 metra skautahlaupi karla á Ólympíueikunum í dag. Bandaríkin urðu ólympíumeistarar kvenna í íshokkí í kvöld eftir sigur í framlengdum úrslitaleik gegn Kanada. Bandaríkjakonur Ólympíumeistarar í íshokkí eftir framlengingu Bandaríkin og Kanada mættust í úrslitaleik íshokkíkeppni kvenna í kvöld. Bandaríkin unnu 5-0 sigur á Kanada í riðlakeppninni en í kvöld komst Kanada 1-0 yfir í öðrum leikhluta þegar Kristin O’Neill skoraði. Þetta var aðeins annað markið sem Bandaríkjakonur fengu á sig á Ólympíuleikunum. Kanada hélt þessari forystu þar til tvær mínútur voru eftir af leiknum en þá skoraði fyrirliðinn Hilary Knight fyrir Bandaríkin og jafnaði í 1-1. Það urðu lokatölur eftir þrjá leikhluta svo grípa þurfti til framlengingar. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af henni skoraði Megan Keller gullmark og tryggði Bandaríkjunum 2-1 sigur og þriðja Ólympíumeistaratitilinn. Frá því byrjað var að keppa í íshokkí kvenna á Vetrarólympíuleikunum árið 1998 hafa aðeins Kanada og Bandaríkin unnið gullið. Kanada var ríkjandi meistari síðan 2022. Sviss vann bronsið eftir 2-1 sigur á Svíþjóð í bronsleiknum fyrr í kvöld. Þriðju gullverðlaun Ofterbro Keppni í liðakeppni norrænu tvíkeppninnar reyndist æsispennandi en eftir skíðastökkhlutann voru það Þjóðverjar sem leiddu og þar á eftir komu Norðmenn, Japanir og Finnar. Árangurinn í skíðastökki stillir upp rásröðinni í hinni grein tvíkeppninnar, skíðagöngunni. Norðmenn og Finnar söxuðu á forskot Þjóðverjanna og voru orðin fremstu liðin um miðbik göngunnar. Lokaspretturinn var svo hnífjafn. Aðstæður voru erfiðar en mikil snjókoma gerði keppendum erfitt fyrir. Noregur styrk sinn í skíðagönguhlutanum og tryggði sér dramatískan sigur. Í norska liðinu voru Jens Lurås Oftebro og Andreas Skoglund en þeir fóru fram úr Finnum á endasprettinum og unnu gullið með aðeins hálfrar sekúndu mun. Þetta voru þriðju gullverðlaun Oftebro á leikunum en hann vann norrænu tvíkeppnina bæði af stórum og litlum palli og svo nú liðakeppnina. Alls eru verðlaun Norðmanna orðin 34 á leikunum til þessa, þar af 16 gullverðlaun. Norræna tvíkeppnin að líða undir lok? Eero Hirvonen og Ilkka Herola tóku silfrið eftir mikla baráttu, en Austurríkismennirnir Stefan Rettenegger og Johannes Lamparter tryggðu sér bronsið. Þetta gæti hafa verið í síðasta sinn sem keppt er í þessari grein á Ólympíuleikum en vinsældir norrænu tvíkeppninnar hafa dvínað undanfarin ár. Ný keppni, skímó Ein ný grein er á Vetrarólympíuleikunum í ár; fjallaskíði. Í fjallaskíðakeppni, ski mounteneering , sem oft er stytt í skímó, ganga keppendur upp fjall á skíðum, með skíðin á bakinu upp brattan tröppukafla, taka skinn af skíðunum og renna sér svo í mark. Eftir riðlakeppni kepptu sex sterkustu skíðararnir í úrslitum. Hjá konunum var það Marianne Fatton frá Sviss sem stóð uppi sem fyrsti ólympíumeistarinn í þessari grein. Hin franska Emily Harrop varð önnur og Ana Alonso Rodriguez frá Spáni þriðja. Landi Rodriguez, Oriol Cardona Coll varð ólympíumeistari í karlaflokki en hann kom nokkuð örugglega fyrstur í mark á undan Nikita Filippov, sem keppir undir hlutlausum fána, og Thibault Andelmet frá Frakklandi. Á laugardag verður keppt í blandaðri boðgöngu í þessari grein.