Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

ÓL dagur 15: Getur unnið fimmtu ólympíuverðlaunin eftir „verstu viku lífs síns“

Read Full Article →

Keppt verður til sjö gullverðlauna á Vetrarólympíuleikunum í dag, þriðja síðasta keppnisdegi leikanna. Norðmenn hafa verið lang sigursælastir á leikunum til þessa og tróna efstir á toppi verðlaunatöflunnar . Ekki er ólíklegt að Noregur bæti fleiri verðlaunum við töfluna í dag þegar keppt verður í 15 km hópstarti karla í skíðaskotfimi. Þar eru meðal keppenda þrír Norðmenn sem hafa þegar unnið til verðlauna á þessum leikum á Ítalíu. Einn þeirra er Sturla Holm Lægreid sem vakti heimsathygli eftir að hann vann bronsið í 20 km skíðaskotfimi þann 10. febrúar sl. Þar notaði Sturla tækifærið í sjónvarpsviðtali til að biðja fyrrverandi kærustu sína afsökunar á framhjáhaldi. „Ég sagði henni það fyrir viku og þetta hefur verið versta vika lífs míns,“ sagði Lægreid eftir að hafa talað um bronsverðlaunin. Baðst afsökunar á afsökunarbeiðninni Viðbrögðin létu ekki á sér standa og hefur Sturla ekki aðeins verið harðlega gagnrýndur fyrir að beina kastljósinu að fyrrverandi kærustu sinni á þennan hátt heldur einnig fyrir tímasetninguna á þessari játningu. Hann baðst síðar afsökunar og sagðist iðrast þess innilega að hafa borið svo persónuleg mál upp á stundu sem hefði átt að snúast um sigurgleði Norðmanna en landi hans Johan-Olva Botn vann gullverðlaunin í sömu keppni. „Ég er ekki alveg með sjálfum mér í dag og hugsa ekki skýrt. Afsökunarbeiðni mín beinist til Johan-Olav, sem átti alla athyglina skilið eftir gullverðlaunin, og einnig til fyrrverandi kærustu minnar, sem lenti ósanngjarnt í sviðsljósi fjölmiðla. Ég vona að hún hafi það gott.“ Sankaði áfram að sér verðlaunum eftir játninguna Eftir þetta umtalaða viðtal hefur Sturla unnið til verðlauna í öllum þremur greinunum sem hann hefur tekið þátt í og er því komin með fern verðlaun á leikunum. Hann er með tvenn bronsverðlaun, í 20 km göngunni og 10 km sprettgöngu. Þá er hann með tvenn silfurverðlaun, í 12,5 km eltigöngu og svo 4x7,5 km boðgöngu með norsku sveitinni. Lægrid getur því unnið sín fimmtu verðlaun á leikunum í dag þegar hann keppir í 15 km hópstarti klukkan 13:05 í beinni útsendingu á RÚV. Undanúrslit í íshokkí Þá verða einnig leikin undanúrslitin í íshokkíkeppni karla. Þar mætast fyrst Kanada og Finnland og svo Bandaríkin og Slóvakía og verða báðir leikir sýndir beint á rásum RÚV. Alls verða sjö beinar útsendingar frá keppni dagsins á rásum RÚV.

Share this article