Nú styttist í annan endann á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina, því þeim lýkur á sunnudag. Það er þó enn nóg um að vera á Ítalíu og í dag var keppt í 15 km hópstarti karla í skíðaskotfimi. Frökkum og Norðmönnum hefur gengið þjóða best í skíðaskotfiminni í ár og það var einmitt Frakki sem leiddi eftir fyrstu skotseríuna, Emilien Jacquelin. Þrátt fyrir að geiga einu sinni í þeirri næstu var hann enn á meðal fremstu manna þegar þeir komu á skotsvæði þrjú. Norðmaðurinn Johannes Dale-Skjevdal náði því hins vegar í fyrsta sinn á ferlinum að hitta úr öllum 20 skotum sínum og náði sér í gott forskot sem skilaði honum sigri og vann hann sín fyrstu verðlaun á sínum fyrstu Ólympíuleikum. Sturlað hjá Sturlu Landi hans Sturla Holm Lægreid átti 29 ára afmæli í dag og fagnaði því með silfuverðlaunum en hann varð annar og tókst þannig að vinna til verðlauna í öllum fimm greinum skíðaskotfiminnar á þessum leikum. Þrjú silfur og tvö brons. Sturlaðir Ólympíuleikar hjá Sturlu verður að segjast. Frakkinn Quentin Fillon Maillet fékk svo bronsið. Noregur sló eigið met á þriðju Vetrarólympíuleikunum í röð yfir flest gullverðlaun á einum og sömu leikunum í dag. Norðmenn urðu í tveimur efstu sætunum í 15 km hópstarti í skíðaskotfimi karla. Norskt gullmet á þriðju leikunum í röð Með sigri Dale-Skjevdal sló Noregur eigið met á þriðju Vetrarólympíuleikunum í röð yfir flest gullverðlaun á einum og sömu leikunum. Þau eru nú orðin 17 talsins. Gullið í skíðaati til Þýskalands Í skíðaati eru fjórar skíðakonur í brautinni á sama tíma. Í hverri umferð komast þær tvær fyrstu í mark áfram þar til fjórar eru eftir sem skíða þá um gullið. Daniela Maier frá Þýskalandi sigraði eftir æsispennandi úrslit. Maier tryggði sér sigurinn með örlitlu forskoti á hina reynslumiklu Fanny Smith frá Sviss, sem hlaut silfur. Sandra Näslund frá Svíþjóð sem hefur verið ein sú sterkasta í heimsbikarnum síðustu ár, endaði í þriðja sæti og tók bronsið. Noregur sló eigið met á þriðju Vetrarólympíuleikunum í röð yfir flest gullverðlaun á einum og sömu leikunum í dag. Norðmenn urðu í tveimur efstu sætunum í 15 km hópstarti í skíðaskotfimi karla. Fjórir Kínverjar í lokaúrslitum skíðafimi Tólf kepptu til úrslita í skíðafimi karla. Hver fær tvær tilraunir til að ná sem bestu stökki og eftir fá sex efstu eitt lokastökk sem telur þá til úrslita. Fjórir af þeim sem komust í lokaúrslit voru frá Kína, hinir tveir frá Sviss. Kínverjinn Xindi Wang átti besta lokastökkið upp á 132,60 stig og hann vann því sín fyrstu Ólympíugullverðlaun. Svisslendingurinn Noé Roth fékk silfur og Tianma Li frá Kína brons. Náði verðlaunaþrennu Hollendingarnir Femke Kok og Jutta Leerdam skiptu með sér gull- og silfurverðlaununum í 500 og 1000 metra skautahlaupi kvenna. Þær komust þó ekki á pall í 1500 metra skautahlaupi í dag en það var samt Hollendingur sem vann. Antoinette Rijpma-de Jong vann sitt fyrsta ólympíugull og náði þar með þrennu eftir að hafa áður unnið silfur og brons. Holland hefur nú unnið sjö gull á leikunum. Ragne Wiklund frá Noregi vann silfur og Kanadakonan Valérie Maltais tók bronsið.