Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þetta eru ekki bara Norðmenn á skíðum“

Read Full Article →

Nú styttist í annan endann á Vetrarólympíuleikunum því þeim lýkur á sunnudag. Óhætt er að segja að þeir hafi verið tíðindamiklir og vakið mikið umtal. Þetta hefur dregið fleiri að skjánum heldur en oft áður, til að mynda þáttastjórnendur Steve Dagskrá, þá Vilhjálm Frey Hallsson og Andra Geir Gunnarsson. Þeir fóru yfir uppáhaldsaugnablik sín af leikunum hingað til í Ólympíukvöldi í gær. „Þetta er rautt RÚV-merki í hornið dæmi“ Á meðal þess sem þeir tóku fyrir var norski skíðagöngumaðurinn Johan-Olav Botn sem vann 20km skíðaskotfimi karla. Hann tók virkilega á því í göngunni og kom allur útslefaður í mark. Þetta fannst þeim félögum ekki smekklegt: „Er þetta ekki bara spurning um að bera einhverja lágmarksvirðingu fyrir sjálfum sér?“ spurði Vilhjálmur. „Bara að vera með tissjúið í vasanum.“ „Ég hefði ekki haldið að Fransmaðurinn hefði þetta í sér“ Næst voru slagsmál Frakkans Pierre Crinon og Kanadamannsins Tom Wilson í íshokkíinu rædd. Wilson spilar með Washington Capitals í NHL-deildinni en Crinon með Brûleurs de Loups í frönsku deilinni, töluvert slakari deild. Andra Frey fannst þetta niðurlægandi fyrir þann kanadíska enda virtist Crinon með yfirhöndina í bardaganum: „Kanadamaðurinn lítur út eins og Dan Bilzerian, svo er hann bara með andlitið í svellinu.“ Hér fyrir neðan má sjá umræðuna um slefið og slagsmálin en allan þáttinn, þar sem Steve Dagskrá-liðar ræða til að mynda um Lindsey Vonn, magasleða og Sturla Holm Lægreid, má finna í Spilara RÚV . Þeir Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem stýra hlaðvarpinu Steve Dagskrá, kíktu í ólympíukvöld og fóru yfir allt það skemmtilegasta frá Vetrarólympíuleikunum. Slefandi sigurvegari og íshokkíslagsmál voru meðal annars rædd.

Share this article