Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Fáránleg nálgun“ í íslensku íþróttastarfi

Read Full Article →

Noregur vann til flestra verðlauna á nýafstöðnum Vetrarólympíuleikum eða 41 talsins og líka flestra gullverðlauna eða 18. Þeir eru sömuleiðis sigursælasta þjóðin á leikunum frá upphafi. En þeir eiga líka margfalda heims, Evrópu og Ólympíumeistara í handbolta, einn besta fótboltamann í heimi, kylfing, skákmann, frjálsíþróttafólk og svona væri lengi hægt að halda áfram. Þetta er engin tilviljun. Þetta er mjög markviss, fagleg og ígrunduð vinna af hálfu Norðmanna í þessu samhengi. Það er mikil hefð og menning fyrir því að vera góður í íþróttum. Þetta byrjar þegar þeir fá Ólympíuleikana í Lillehammer 1988. Þá var komin afreksmiðstöð í Noregi og í kjölfarið setja þeir inn Olympiatoppen sem er eins og afreksmiðstöðin sem við stofnuðum núna í apríl, segir Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði sem var gestur Morgunútvarpsins á Rás 2 í morgun. Norðmenn eiga íþróttafólk í fremstu röð í hinum ýmsu íþróttagreinum. Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði ræddi málið og samanburðinn við Ísland í Morgunútvarpinu. Erlingur segir athyglisvert að afreksmiðstöðin hafi verið sett á laggirnar í höfuðborginni Osló en einnig landsfjórðungastöðvar í þessu langa landi. Lagt sé upp með að ríki og sveitarfélög komi saman að þessu. Fjármagnið skili sér þannig inn í samfélagið á þessum stöðum sem þýðir að íþróttafólkið sem er að ná árangri núna komi frá öllu landinu. Afrekskrakkarnir eru sjaldan aldir upp í stóru borgunum. Þeir eru miklu oftar frá litlum bæjum þar sem þeir hafa þessa umgjörð sem krefst til að ná langt. Lykillinn í þessu samhengi er samvinna. Reglur um barnaíþróttir eru skýrar í Noregi. Þar er lagt upp með að börn keppi ekki fyrr en um 12-13 ára aldur. Þeim er heldur ekki skipt upp í A-, B- og C-lið fyrr en á unglingsaldri. Sérhæfing á ekki að koma snemma, samkvæmt norsku aðferðinni. Íslenska módelið í stuttu máli er alltof keppnismiðað. Við erum að setja krakkana í A, B og C-lið þegar þau eru 8-9 ára. Við erum að fara inn með sérhæfingu og skiptingu í lið alltof snemma. Og láta þau keppa á mótum alltof snemma. Fjáröflun íþróttafélaganna byggist á því að láta krakkana keppa mjög ung, þetta er fáránleg nálgun, segir Erlingur. Norðmennirnir eru ekki þarna. Ef þú velur íþróttagrein við 16-17 ára aldur eru miklu meiri líkur á að þú verðir afreksmaður. Viðtalið við Erling í heild má finna í spilaranum að ofan.

Share this article