Sjö útsendingar verða á stöðvum RÚV í dag frá Vetrarólympíuleikunum. Gunnar Birgisson mun lýsa keppni í tvíkeppni í skíðagöngu og boðgöngu í skíðaskotfimi karla. Þá munu bretta- og skíðafólk leika listir sínar í brettastíl kvenna og skíðafimi karla af stórum palli. Ólympíukvöld verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem Gunnar Birgisson og Edda Sif Pálsdóttir fara yfir allt það helsta á leikunum. Við vekjum athygli á því að Ólympíukvöld er örlítið fyrr á dagskrá en vanalega. Það hefst klukkan 20:55 í kvöld.