Vetrarólympíuleikarnir eru enn á fleygiferð. Í dag keppa þær Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir í svigi. Þá hefjast átta liða úrslit í íshokkí karla. Fyrri ferð þeirra er á dagskrá frá klukkan 08:50 á RÚV og seinni ferð hefst klukkan 12:20. Deginum lýkur svo með 3000 metra keppni í skautaati karla sem verður æsispennandi. Ólympíukvöld er auðvitað á sínum stað í kvöld en þar verður farið yfir alla helstu atburði dagsins.