Fyrri ferð stórsvigs kvenna á Vetrarólympíuleikunum er nú lokið þar sem Ísland er með tvo keppendur. Elín Elmarsdóttir Van Pelt ræsti 65. og er í 49. sæti eftir fyrri ferðina. Sonja Lí Kristinsdóttir var 73. í rásröðinni og er sem stendur í 53. sæti. Elín og Sonja í ólympíuhringjunum í CortinaRÚV / ÞGS Elín var 7,05 sekúndum frá fremstu konu, Sonja 9,08 sekúndum, heimakonunni Federicu Brignole. Lena Dürr frá Þýskalandi er önnur og hin ítalska Sofia Goggia þriðja. Útsending frá seinni ferðinni hefst 12:20 á RÚV.