Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Elín vann sig upp um sex sæti og Sonja datt

Read Full Article →

Elín Elmarsdóttir Van Pelt lauk keppni í 43. sæti í stórsvigi kvenna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Elín vann sig upp um sex sæti í seinni ferð sinni en hún var í 49. sæti eftir fyrri ferðina. Sonja Lí Kristinsdóttir kláraði ekki seinni ferð sína en hún var í 53. sæti eftir fyrri ferðina. Elín var 13,71 sekúndum frá fremstu konu og var á samtals 2:27,21. Fyrri ferðina fór hún á 1:10,28 mínútu og þá seinni á 1:16,93. Heimakonan vann Heimakonan Federica Brignona vann sín önnur gullverðlaun á mótinu og áhorfendur trylltust. Hún brotnaði afar illa fyrir tíu mánuðum og hefur átt frábæra Ólympíuleika en þetta eru hennar fimmtu. Hún kláraði á 2:13,50, 0,62 sekúndum á eftir næstu konum. Kláruðu á sama tíma upp á sekúndubrot Svíinn Sara Hector og Norðmaðurinn Thea Louise Stjernesund voru hnífjafnar í báðum ferðum sínum dag og enduðu því báðar með silfur. Þær fóru fyrri ferðina á 1:03,97 sekúndum og seinni ferðina á 1:10,15.

Share this article