Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir kepptu báðar í svigi á Vetrarólympíuleikunum í morgun. Þær ræstu seint og brautin var orðin mjög erfið á þeim tímapunkti og báðar misstu af hliði og eru því úr leik. Sonja Lí í stórsviginuIMAGO Ein besta skíðakona heims, Mikaela Shiffrin frá Bandaríkjunum, leiðir eftir fyrstu ferð. Hún er 0,82 sekúndum á undan hinni þýsku Lenu Dürr, Cornelia Öhlund frá Svíþjóð er í þriðja sæti, sléttri sekúndu á eftir Shiffrin. Seinni ferðin verður í beinni útsendingu á RÚV sem hefst 12:20.